CellarTracker!™

Search: (advanced)




Other resources
CellarTracker! Forum
About this site
Links to other sites




  Home | All Cellars | Tasting Notes | Reports | UsersHelp | Member Sign In 
  >> USE THE NEW CELLARTRACKER <<
 9/8/2016 (Gamla Bíó)
 

 

Innflutningsfyrirtækið Haugen var með viðburð þar sem boðið var upp á að smakka fjöldann allan af vínum bæði léttu og sterku. Bjór og léttar veitingar voru líka í boði. Mjög glæsilegt smakk.

 

Viđ byrjuđum á Hardys og Saint Clair borđinu.

  • 2013 Hardys Cabernet-Shiraz Nottage Hill - Australia, South Eastern
    Mjög óspennandi. Ekkert bragð til að tala um og engin einkenni. Ekki slæmt samt í sjálfu sér. Bara enginn karakter. (79 pts.)
  • 2014 Saint Clair Family Estate Pinot Gris Vicar's Choice - New Zealand, South Island, Marlborough
    Alveg frambærilegt pinot gris frá Nýja Sjálandi. Þurrt og ferskt. Held að verðmiðinn sé samt aðeins of hár fyrir þetta vín. (82 pts.)
  • 2014 Saint Clair Family Estate Merlot Vicar's Choice - New Zealand, South Island, Marlborough
    Mjög þurrt. Þurfti nokkra sopa til að ná að átta mig á víninu. Mjög viðkunnanlegt vín þegar bragðlaukarnir voru farnir að átta sig. Er samt ekki viss um að þetta verði keypt reglulega. Fyrir 2,8k eru bara betri kostir í boði. Gaman samt að smakka rauðan Nýsjálending. (84 pts.)
  • 2014 Saint Clair Family Estate Pinot Noir Vicar's Choice - New Zealand, South Island, Marlborough
    Hef smakkað þetta vín áður, samt ekki þennan árgang. Það er eitthvað krydd í þessu sem mér finnst ekki passa við pinot noir. Ekki sannfærandi og verðmiðinn (2,8k) heillar ekki heldur. (81 pts.)
  • 2013 Saint Clair Family Estate Pinot Noir Pioneer Block 4 Sawcut - New Zealand, South Island, Marlborough
    Þetta vín var í allt öðrum klassa en fyrra SC pinot noir vínið. Krydd og pipartónar sem trufluðu í því voru ekki til staðar hér. Flottir berjatónar og yfirleitt mjög gott vín. Verðið er samt ekki að hjálpa. Ég væri til í að kaupa þetta á 2,8k en ekki á 3,8. (86 pts.)
  • 2013 Saint Clair Family Estate Chardonnay Omaka Reserve Marlborough - New Zealand, South Island, Marlborough
    Mér finnst þetta vín sýna fram á það að Nýsjálendingar eigi ekki að vera að rembast við rauðvínsgerð. Smakkaði þrjú rauð frá þessum framleiðanda. Tvö svona lala og eitt sem var alveg fínt. Verðmiðinn á þeim miðað við gæði er samt ekki hagstæður. Þetta hvítvín var hins vegar mjög gott. Kostar reyndar 3,7k en er virkilega flott. Suðrænir ávextir, smjör og hamingja. Flott vín. (88 pts.)

Adobe borđiđ.

  • 2014 Emiliana Pinot Noir Adobe Reserva - Chile, Rapel Valley
    Mjög flottur og ferskur pinot noir frá Chile. Verðmiði 2k, sem gjörsamlega jarðar Nýsjálendingana. Þetta vín gæti alveg dottið inn í hversdagspakkann hjá okkur. Mjög góð kaup. (84 pts.)
  • 2014 Emiliana Merlot Adobe Reserva - Chile, Rapel Valley, Colchagua Valley
    Það voru margar Adobe gerðir í boði. Ég lét nægja að smakka pinot noir og carmenere. Þó ég sé hrifinn af carmenere yfirleitt, þá fannst mér pinot noir vínið vera betra frá Emiliana. Carmenere engan veginn slæmt en ég saknaði samt krækiberjatóna sem einkenna oft þessa þrúgu. Verðið er mjög hagstætt og þetta gæti alveg dottið í körfu við og við. (83 pts.)

Kíkt svo á Dievole borđiđ.

  • 2014 Dievole Le Due Arbie Rosso Toscana IGT - Italy, Tuscany, Toscana IGT
    Nú var skipt um gír og hoppað frá Nýja Sjálandi til Ítalíu. Lendingin var með brauki og bramli því þetta vín var mjög óspennandi. Í mjög svipuðum klassa og fyrsta vínið sem var smakkað. Gaf þessu reyndar aðeins meira (81 er samt rausnarlegt). Á 2,5k alveg skelfileg kaup. (81 pts.)
  • 2014 Dievole Chianti Classico - Italy, Tuscany, Chianti, Chianti Classico DOCG
    Þvílíkt stökk upp frá óspennandi IGT víninu og yfir í Chianti Classico. Mjög frambærilegur Chianti. Á 3,5k líklega bara á meðalverði. Náttúrlega mjög ungt vín og á vafalaust eftir að batna í flösku. (87 pts.)
  • 2008 Dievole Chianti Classico Riserva Novecento - Italy, Tuscany, Chianti, Chianti Classico DOCG
    Virkilega flottur Chianti Classico Reserva. Sex árum eldra en CC sem var smakkað næst á undan frá sama framleiðanda. Ekki séns að hella þessu niður. Flott jafnvægi, mikil sýra , örugglega glæsilegt matarvín. Flauelsmjúkt. Eini gallinn er verðmiði upp á 6k. Gaman að hafa smakkað þetta vín. Ég er samt ekki viss um að ég eigi eftir að fjárfesta í þessu víni. (91 pts.)

Skemmtilegt borđ, Nino Negri.

  • 2011 Nino Negri Sfursat - Italy, Lombardia, Valtellina, Sforzato di Valtellina
    Næst voru smökkuð þrjú vín frá Langbarðalandi á Ítalíu. Ég fór líklega öfuga leið, byrjaði á besta víninu og endaði á því slakasta. Allavega, þetta vín er gert á sama hátt og Amarone í Veneto héraðinu. Í stuttu máli sagt, hér er á ferðinni drullugott vín frá héraði sem að ég vissi ekki að væri til. Geggjað vín. Kostar reyndar sitt en er algerlega peninganna virði. Þetta er líklega óvæntasta góða vínið (allavega fyrir mig) í smakkinu. Ég á eftir að kaupa þetta og hugsanlega systravínin líka. (91 pts.)
  • 2011 Nino Negri Valtellina Superiore - Grumello Sassorosso - Italy, Lombardia, Valtellina, Valtellina Superiore - Grumello
    Ekki næstum því jafn spennandi vín og Sfurso. Enda líka talsverður verðmunur. Þetta er á um 3k og ekkert sérstaklega góð kaup á því verði. Kemur frá svæði rétt hjá Mílanó. Held að ég hafi ekki smakkað vín þaðan áður. (85 pts.)
  • 2012 Nino Negri Valtellina Superiore - Sassella - Italy, Lombardia, Valtellina, Valtellina Superiore - Sassella
    Mér fannst þetta vín ekki eins spennandi eins og Sassorosso vínið. Þó er þetta 400 kalli dýrara. Engu að síður vel gert vín. Vín sem kostar 3.400 kall þarf samt að bjóða upp á aðeins meiri tilþrif en þetta gerði. (84 pts.)

Bordeaux borđ, eitt af ţeim flottari í smakkinu.

  • 2011 Château Haut Breton Larigaudičre - France, Bordeaux, Médoc, Margaux
    Þarna kom loksins flottur ilmur. Dæmigerður þungur og höfugur Bordeaux ilmur. Þegar bragðað var á víninu þá stóð það ekki alveg undir þessum flotta ilmi. Ágætis vín samt. Ekki ódýrt vín eða á 5k. (87 pts.)
  • 2009 Château Tour Baladoz - France, Bordeaux, Libournais, St. Émilion Grand Cru
    Flottur Bordeaux ilmur. Vínið í góðu jafnvægi. Þroskað, mjúkt og þægilegt. Alvöru vín. Kostar 5.500 kall sem liggur við að sé stuldur! Ég held að ég prófi að kaupa eina svona og athugi hvort að bragðlaukarnir hafi nokkuð verið að stríða mér. (89 pts.)
  • 2010 Château La Croizille - France, Bordeaux, Libournais, St. Émilion Grand Cru
    Ég var mjög hrifinn af þessu víni. Að mínu áliti voru þetta og svo La Torre Muga flottustu vín kvöldsins. Ilmurinn var gríðarlega flottur. Mikill, höfugur og fágaður. Flottur árgangur líka. Þægilegt í munni líka. Silkimjúkt og glæsilegt. Kostar reyndar sitt eða 12,5k. Maður hefði náttúrlega átt að enda á þessu víni en það gat maður ekki vitað fyrirfram. (93 pts.)

Laurent Miguel og Château Cazal borđiđ.

  • 2014 Laurent Miquel Pere et Fils Albarińo - France, Languedoc Roussillon, Languedoc, Aude
    Svo var manni kippt aftur niður á jörðina með fremur óspennandi hvítvíni frá Languedoc. Lítið um það að segja. Reyndar svolítið ósanngjarnt að smakka það beint á eftir La Croizille. Sleppi því að gefa þessu víni einkunn að þessu sinni. Ég var að hugsa um 83-84 en miðgildi á CT einkunnum fyrir þetta vín er 89 þannig að bragðlaukarnir hafa líklega verið aðeins bjagaðir eftir flotta vínið.
  • 2014 Laurent Miquel Pere et Fils Chardonnay Vin de Pays d'Oc L'Artisan - France, Languedoc Roussillon, Vin de Pays d'Oc
    Þetta er alveg frambærilegt hvítvín. Engin flugeldasýning en traust og bragðgott. Á fínu verði líka eða 2,2k. (84 pts.)
  • 2013 Laurent Miquel Pere et Fils L'Artisan Languedoc - France, Languedoc Roussillon, Languedoc, Coteaux du Languedoc
    Þokkalegt rauðvín en svosem ekkert meira en það. Verðmiði upp á 2,3k. Er ekki viss um að ég eigi eftir að kaupa þetta. (83 pts.)
  • 2011 Château Cazal Viel Saint-Chinian Vieilles Vignes - France, Languedoc Roussillon, Languedoc, Saint-Chinian
    Myndin sem ég tók af vínflöskunni var aðeins hreyfð þannig að árgangurinn sést ekki. Samkvæmt Haugen verðlistanum þá er þetta 2011 árgangur. Trúi því bara. Allavega þetta var stórt skref uppávið frá Laurent Miquel vínunum. Og á mjög hagstæðu verði eða 2,5k. Þetta er af gömlum vínviði. Það finnst líka alveg. Miklu meiri dýpt, kraftur og fágun en í LM vínunum. Ég myndi kaupa þetta vín ef það á eftir að detta inn í vínbúðir. (87 pts.)
  • 2007 Laurent Miquel Pere et Fils Saint-Chinian Bardou - France, Languedoc Roussillon, Languedoc, Saint-Chinian
    Þetta er mikið vín. Held að það sé næstum því nauðsynlegt að hafa mat með þessu víni. Það er það kraftmikið. Gott vín en líklega enn betra með mat. Miðarnir á flöskunni voru mjög furðulegir. Neðri miðinn stílhreinn og klassískur en sá efri ekki í neinu samhengi við þann neðri. Furðulegt. (89 pts.)

Svo var komiđ viđ á Rivetto borđinu. Hvítvíniđ kom á óvart ţar.

  • 2012 Rivetto Langhe Nascetta - Italy, Piedmont, Langhe, Langhe DOC
    Þetta var eitt af þeim vínum sem komu mér mest á óvart í smakkinu. Ég vissi alveg að það væru gerð hvítvín þarna en að þau væru svona góð það vissi ég ekki. Frábært hvítvín ferskt, frískt og mjög fágað. Kostar reyndar sitt en góð vín kosta. (91 pts.)
  • 2013 Rivetto Barbera d'Alba Nemes - Italy, Piedmont, Alba, Barbera d'Alba
    Varð fyrir vonbrigðum með þetta vín. Eins og Nascetta vínið næst á undan var gott þá var þetta ekki spennandi. Barbera d'Alba snýst um ferskleika og mér fannst hann vanta. Líka ekki ódýrt. 3.500 kall. (86 pts.)
  • 2012 Rivetto Barolo Del Comune Di Serralunga D'Alba - Italy, Piedmont, Langhe, Barolo
    Þetta var alveg ágætis Barolo. Fór allavega langt fram úr systurvíninu. Kostar 7k sem er ekki lítið en fyrir peninginn fæst alveg ágætlega gerður Barolo. Mjög ungur ennþá og ætti að geta bætt við sig með auknum þroska. (89 pts.)

Kampavínsborđiđ Nicolas Feuillatte.

  • N.V. Nicolas Feuillatte Champagne Brut Rosé - France, Champagne
    Næst voru smökkuð tvö kampavín frá Nicolas Feuillatte. Við byrjuðum á að smakka rósakampavín. Það kom skemmtilega á óvart, var virkilega gott og er á hagstæðu verði (miðað við kampavín) eða 7k flaskan. Liturinn óvenjulega dökkur. Mjög ánægjuleg uppgötvun. (89 pts.)
  • N.V. Nicolas Feuillatte Champagne Brut - France, Champagne
    Seinna kampavínið sem var smakkað frá NF var grunnvínið þeirra úr magnum flösku. Glettilega gott kampavín. Magnum flaskan á mjög hagstæðu verði eða 10k! Ég skrifaði hjá mér 89-90. Læt hærri einkunnina fjúka. Var býsna ánægður með þetta vín. (90 pts.)

Tvö vín úr sitthvorri áttinni.

  • 2011 Château Cordeillan-Bages - France, Bordeaux, Médoc, Pauillac
    Rakst á þetta vín eftir kampavínsborðið. Þokkalegt Pauillac vín. Ágætis nef. Gott jafnvægi. Ekki besti árgangurinn frá svæðinu. Á nú ekki von á því að ég fjárfesti í þessu fyrir 8,5k pr. flösku. (88 pts.)
  • 2012 Domaine des Sénéchaux Châteauneuf-du-Pape - France, Rhône, Southern Rhône, Châteauneuf-du-Pape
    Já þetta var alveg frambærilegt eintak af CdP. Dálítið mikið krydd. Ég var ekki alveg sáttur við vínið í byrjun en það kom til í glasinu. Í heldur flottari klassa en Clos de l'Oratoire, sem er líka heldur ódýrara. (90 pts.)

Tveir Spánverjar.

  • 2015 Parés Baltŕ Penedčs Ros de Pacs R - Spain, Catalunya, Penedčs
    þá að Pares Balta borðinu. Smakkað rósavín frá þeim. Alveg ágætis rósavín. Ferskt og frískandi eins og þau eiga að vera. Fékk svo að smakka Muga rósa á Muga borðinu stuttu síðar. Það var betra enda talsverður verðmunur. Þetta er góð kaup á 2k. (87 pts.)
  • 2009 Gratavinum Priorat 2 Pi R - Spain, Catalunya, Priorat
    Á eða við Pares Balta borðið fann ég þetta vín. Náttúrlega ómögulegt að sleppa því að smakka vín með þessu nafni. Þarna mátti finna dæmigerða Priorat tóna. Samt mildari heldur en ég hef oft smakkað. Vínið samt full dýrt miðað við gæði. Priorat er samt alltaf dýrt. Þetta er vín sem kostar 21€ hjá félaga okkar í VinoVí. Líklega er þetta bara sanngjörn verðlagning miðað við það. (90 pts.)

Síđasta léttvínsborđiđ og ţađ ekki af verri endanum, Muga.

  • 2012 Bodegas Muga Rioja Reserva - Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja
    Síðasta léttvínsborðið sem ég kíkti á var Muga borðið. Smakkaði þar á alls þremur vínum. Fékk samt fyrst sopa af Muga rósavíni hjá Hildigunni. Alltaf klassi. Gaf því samt ekki einkunn. Fékk mér svo þetta sem er líka alltaf traust vín. Þessi árgangur ef til vill ýfið slakari en nokkrir síðustu sem ég hef smakkað. Samt alltaf mjög gott. (89 pts.)
  • 2010 Bodegas Muga Rioja Selección Especial - Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja
    Svo fékk ég að bragða á þessu víni. Aldeilis stórgott vín. Rosalega flott jafnvægi og kraftur. Á enn eftir að bæta sig held ég. Á tímabili var hægt að fá það í fríhöfninni á 4,5k en nú held ég að það sé dottið út. Greinilega hægt að sérpanta það en kostar þá 6,3k. (92 pts.)
  • 2011 Bodegas Muga Rioja Torre Muga - Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja
    Síðasta léttvínið sem ég smakkaði að þessu sinni var svo Torre Muga. Í verðlistanum segir að hægt sé að panta 2010 árganginn en í smakkinu var alveg áreiðanlega boðið upp á 2011. Frábært vín. Að mínu mati besta vín kvöldsins. Ef hægt er að fá 2011 árganginn hér þá eru það góð kaup þrátt fyrir verðmiða upp á 12k. Ég skrifaði í nóturnar mínar 93-94. Læt 94 flakka að þessu sinni. (94 pts.)

Klykkt síđan út međ viskíi.

Þau léttvín sem stóðu upp úr í mínum hugavoru: Nicolas Feuillatte kampavínin, Nino Negri Sfursat, Rivetto Nascetta hvítvínið, Ch. la Croizille frá Bordeaux og Torre Muga. Allt saman mjög góð vín. Síðasta vínið sem var smakkað var svo magnað vín, Dalmore King Alexander III.

 


 
© 2003-24 CellarTracker! LLC. All rights reserved. "CellarTracker!" is a trademark of CellarTracker! LLC. No part of this website may be used, reproduced or distributed without the prior written permission of CellarTracker! LLC. (Terms and Conditions and Privacy Policy.) - Follow us on Twitter and on Facebook