Marbakkabraut 12
Tasted Friday, November 8, 2013 by bitdrerik with 417 views
Þemað í þessum vínklúbbi endaði á að vera tempranillo þrúgan. Frekar slappt úrval í vínbúðum auðveldaði ekki samsetninguna á smakkinu. Að auki var laumað inn einum jóker eins og venjulega. Að þessu sinni voru þátttakendur í smakkinu sex. Björgvin, Indriði, Jón Loftur, Sverrir, Siggi og Jón Lárus.
Niðurstaðan úr smakkinu var að fyrsta vínið var áberandi bestu kaupin. Reyndar ótrúlega gott vín fyrir 1600 kr. Annað og þriðja vínið ollu talsverðum vonbrigðum. Þau höfðu ekki mikið fram yfir fyrsta vínið að færa og miðað við verð þá er þar ekki um góð kaup að ræða. fjórða vínið var jókerinn og þótt vínsmakkendur væru á því að þetta væri nú líklega ekki tempranillo og líklega ekki spænskt vín þá tókst nú enn einu sinni að rugla okkur í ríminu með Zinfandelic (kemur ekki fyrir aftur). Í fimmta og sjötta víni þá vorum við komnir í aðeins þyngri vín, Muga og Pesquera. Þau voru smökkuð frekar svöl og getur verið að þau hafi liðið aðeins fyrir það. Síðasta vínið í smakkinu var svo Gran Claustro frá Perelada og var það áberandi besta vín kvöldsins. Enda kostaði það 6500 kr. Í lokin var svo tekin ein aukaflaska GR-174. Fínt vín en engar nótur voru skráðar um það.
2006 García Carrión Valdepeñas Pata Negra Reserva 87 Points
Spain, Castilla-La Mancha, Valdepeñas
Frekar ljóst á litinn. Orðið svolítið brúnt í jaðrinum. Í ilmi, krydd, vanilla, pipar. Í munni fundum við Kirsuber, lakkrís. Talsverð sýra en bragðið entist ekki lengi. Eftir að hafa geymt vínið í svolitla stund í glasi kom fram áberandi karamella.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2007 Bodegas Drinks and Dreams Douro D + D Douro+Duero 88 Points
Portugal, Douro
Frekar dökkt. Krydd í ilmi, pipar, vanilla. Einnig kirsuber. Í munni talsverð sýra. Ljós ber, anís. Lakkrís í eftirbragði. Frekar groddalegt og sveitalegt. Þetta vín var ekki alveg að gera sig í samanburði við Pata Negra til að byrja með. Ég geymdi glas af því þangað til síðast í smakkinu og þá hafði það tekið talsverðum framförum. 86 til að byrja með en náði 88-89 í lokin.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2006 Bodegas Alejandro Fernández La Mancha El Vínculo 85 Points
Spain, Castilla-La Mancha, La Mancha
Frekar eða jafnvel mjög dökkt á litinn. Í ilmi sæta, sveitalegur ilmur, jarðartónar, lakkrís. Í munni kraftmikið. Talsverð tannín. Kaffikeimur í eftirbragði. Í lokin kom svo fram beiskja. Indriði sagði að víninu hefði verið umhellt klukkutíma fyrir smakk.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2008 Zinfandelic Zinfandel 87 Points
USA, California, Sierra Foothills, Amador County
Litur, frekar ljós. Í nefi mátti finna m.a. karamellu, blómailm (fjólur). Upphafleg sæta í ilmi dofnar við þyrlun. Í munni létt, þægilegt, eitthvað sem minnir á apótek. Eftir nokkra sopa þá kemur fram remma í bragðinu. Hugsanlega eik sem stingur upp kollinum.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2009 Bodegas Muga Rioja Reserva 89 Points
Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja
Meðaldökkt. Giskað var á 5-6 ára gamalt vín miðað við litinn á því. Frekar lokað. Ekki mikill ilmur en greina mátti ljós ber, jarðarber. Sumir fundu bláber. Mjög gott jafnvægi, slétt og fellt. Ekkert sérlega spennandi samt.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2008 Bodegas Alejandro Fernández Ribera del Duero Tinto Pesquera Reserva 89 Points
Spain, Castilla y León, Ribera del Duero
Mjög dökkur litur. Mjög lokað til að byrja með. Dempaður ilmur. Einna helst að megi greina vanillu. Í munni fínlegur ávöxtur, helst plómur. Beiskja þegar á líður.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2006 Perelada Empordà Gran Claustro 92 Points
Spain, Catalunya, Empordà
Meðaldökkt. Sætur ilmur í nefi. Í munni nettur ávöxtur. Konfektkassi. Mjög flott jafnvægi, glæsilegt vín.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No