Vínsmakk #1 vor 2014

Marbakkabraut 12
Tasted Friday, February 14, 2014 by bitdrerik with 561 views

Introduction

Að þessu sinni var þemað lóðrétt smakk með 4 árgöngum af Baron de Ley, Finca Monasterio. Eftir það voru svo tekin tvö góð vín frá gamla heiminum. Smakkarar voru Björgvin, Indriði, Siggi, Sverrir, Ólafur Andri og Jón Lárus.

Flight 1 (7 Notes)

  • 2010 Baron de Ley Rioja Finca Monasterio 88 Points

    Spain, La Rioja, Rioja

    Fyrsta vín í vínklúbbi. Mjög dökkt á litinn. Í ilmi vanilla, dökk ber, jafnvel reykur. Mikil sæta í bragði, vanilla og dökk ber. Þokkalegt jafnvægi. Fyrir minn smekk var vanillan samt allt of ríkjandi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2007 Baron de Ley Rioja Finca Monasterio 90 Points

    Spain, La Rioja, Rioja

    Annað vín í smakkinu. Mjög dökkt á litinn. Lokaðra heldur en 2010 árgangurinn. Fundum, jörð, vanilla til staðar en mun minna áberandi en í 2010. Talsverð sæta og mun minni sýra en í 2010.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2005 Baron de Ley Rioja Finca Monasterio Flawed

    Spain, La Rioja, Rioja

    Þriðja flaska í vínklúbbi. Ónýt. Klassískur korkur.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2004 Baron de Ley Rioja Finca Monasterio 90 Points

    Spain, La Rioja, Rioja

    Fjórða flaska í vínklúbbi og um leið síðasta flaskan í lóðréttu Finca Monasterio smakki. Þarna er komin brún rönd í jaðrana. Mjög dökkt. Þungur og höfugur ilmur. Örlar á sætu. Í þessu víni voru ávextir nánast horfnir en í staðinn komið leður, kaffi og jafnvel viðartónar (vindlakassinn víðfrægi). Líklega er þetta vín aðeins komið yfir toppinn þannig að það borgar sig ekki að liggja lengi á því í viðbót.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2006 Saint Cosme Châteauneuf-du-Pape 92 Points

    France, Rhône, Southern Rhône, Châteauneuf-du-Pape

    Eftir Baron de Ley lóðrétta smakkið voru teknar tvær flöskur til kostanna í skipulögðu smakki. Við tókum þessa á undan. Frekar ljós litur. Örlítið farið að bera á brúnum tónum í jöðrum. Mjög flottur ilmur. Mjög fersk lykt. Í munni létt sýra, anís og lakkrís áberandi í eftirbragði. Látlaust og fágað vín. Ég smakkaði þetta vín fyrir nærri tveimur árum og það hefur batnað verulega síðan þá.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2007 Il Poggione (Proprietá Franceschi) Brunello di Montalcino 92 Points

    Italy, Tuscany, Montalcino, Brunello di Montalcino

    Síðasta vínið í vínsmakkinu. Mjög ljóst. Örlítil brúnka í jöðrum. Þétt og flott lykt. Blómaangan, fjólur. Í bragði undirliggjandi fjós. Vor í glasi, sagði Sverrir. Flott vín.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2010 Tenuta Sant'Antonio Ripasso della Valpolicella Superiore Monti Garbi 88 Points

    Italy, Veneto, Valpolicella, Ripasso della Valpolicella Superiore

    Aukavín í smakkinu, sem Indriði galdraði fram. Tók ekki niður nótur með því. Þetta var samt mjög frambærilegt vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Ég held að það hafi verið samdóma álit smakkara að Baron de Ley vínin virðast ekki vera hönnuð með langa endingu í huga. Elsta vínið sem við smökkuðum var frá 2004 og virtist vera búið að ná toppnum og líklega frekar á niðurleið ef eitthvað var. Menn voru líka á einu máli um það að BdL FM væri of dýrt miðað við gæði. Það er alveg hægt að finna sambærileg, ef ekki betri vín í 3000 kr. klassa. Rætt var svo um að reyna að koma á Faustino lóðréttu smakki einhvern tímann bráðlega.

×
×