Spánarsmakk hjá deildinni.

Njálsgata 6
Tasted Friday, February 28, 2014 by bitdrerik with 496 views

Introduction

Komum saman nokkur úr deildinni okkar til að smakka nokkur spænsk vín. Valin voru 7 vín frá 7 mismunandi vínhéruðum Spánar. Smakkarar voru: Lovísa, Ægir, Daði, Hjördís, Gunnar, Erla (samt án þess að smakka), Egidijus, Hildigunnur og Jón Lárus. Byrjað var á 2 ódýrum en samt góðum vínum frá Catalunya og Cariñena. Svo voru tekin 3 meðaldýr vín frá Navarra, Ribera del Duero og Rioja. Endað var svo á 2 dýrari vínum frá Priorat og La Mancha.

Flight 1 - Ódýr en góð í ríkinu (2 Notes)

  • 2008 Ramón Roqueta Catalunya Reserva 86 Points

    Spain, Catalunya

    Spánarsmakk fyrsta vín. Frá Catalunya. Lítið farið að sjást af brúnum tónum í jöðrum. Samt 6 ára gamalt. Í ilmi m.a. vanilla, jarðarkenndir tónar. Í munni þurrt, kirsuber. Í góðu jafnvægi. 1900 kall í ríkinu.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2012 El Circo Cariñena Acróbata 85 Points

    Spain, Aragón, Cariñena

    Spánarsmakk, vín nr. 2. Frá Cariñena. Ekki mikill ilmur. Mun sætara en fyrsta vínið mun léttara líka. Kirsuber og jafnvel sítrustónar í munni. 1750 kall í ríkinu.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - Navarra, Ribera del Duero og Rioja (3 Notes)

  • 2009 Guelbenzu Ribera del Queiles Vierlas

    Spain, Navarra, Ribera del Queiles

    Spánarsmakk þriðja vín. Þetta vín kemur frá Navarra. Ekki mikill ilmur. Daufir jarðartónar einna helst. Þurrt, góð sýra. Sólber, plómur. Óþægilegt eftirbragð, lím eða terpentínukeimur. Vonbrigði kvöldsins. Ég gæfi þessu ekki nema 80-82 stig eins og það kom fyrir í smakkinu. Venjulega hefur það skorað 88-89 hjá mér. Kostar 2445 í vínbúðum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2010 Hermanos Pérez Pascuas Ribera del Duero Cepa Gavilán 90 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Spánarsmakk, 4. vín. Nú vorum við komin til Ribera del Duero. Mjög dökkt á litinn. Flottur ilmur. Dökkir ávextir, plómur í ilmi. Virkilega flott vín í góðu jafnvægi. Vanilla, jarðartónar, hrísgrjónabúðingur í bragði. Einnig krydd, múskat. Held að þetta væri flott með nauti og lambi, hefur allavega kraftinn sem þarf. Sumum fannst þetta besta vín kvöldsins. Ótvírætt bestu kaupin að minnsta kosti á 2855 kall. Því má bæta við í lokin að Gavilán þýðir haukur á spænsku.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2007 Bodegas LAN Rioja Gran Reserva 89 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja

    Spánarsmakk, fimmta vín. Þá færðum við okkur um set til Rioja og tókum til kostanna uppáhaldsvín kerfisstjórans. Millidökkt á litinn. Ekki neitt sérstaklega mikill ilmur. Helst smá blómailmur. Í munni sætuvottur, bláber. Nett eik og krydd. Tannín rífa svolítið í jaxlana. Virkilega fínt vín. Flott með lambi. 2697 kr. í ríkinu.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Dýra deildin (3 Notes)

  • 2007 Morlanda (Viticultors del Priorat) Priorat Morlanda Vi de Guarda 91 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Spánarsmakk 6. vín. Priorat héraðið skoðað. Mjög dökkt. Ilmur af grasi, eplum og gamaldags læknastofu. Í munni finnst skógarbotn, dökk ber og vanilla. Gott vín en ég varð fyrir smá vonbrigðum því þetta er alls ekki ódýr dropi. 5368 kostar það í vínbúðum. Ég tékkaði svo á fríhöfninni og það virðist ekki fást þar lengur en það kostaði 4400 kall þar á meðan það fékkst.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2003 Bodegas Alejandro Fernández La Mancha El Vinculo Paraje Le Golosa Gran Reserva 93 Points

    Spain, Castilla-La Mancha, La Mancha

    Spánarsmakk 7. og síðasta vínið. Að þessu sinni erum við komin til héraðs Don Kíkóta, La Mancha. Mjög dökkt vín. Þungur og höfugur ilmur. Útihús, súkkulaði dökk kirsuber. Mjög fágað og mjúkt. Súkkulaði, púðursykur, reykt bragð, útihús. Mér fannst þetta vín bera af. Má líka alveg gera það fyrir 5875 kr. úr ríkinu. Líklega best að drekka svona vín bara eitt og sér eða með parmaosti eða manchego. Villibráð eins og gæs eða rjúpa væri örugglega góður kostur líka.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2011 Bodegas Castaño Monastrell Yecla Hécula 87 Points

    Spain, Murcia, Yecla

    Spánarsmakk. Collateral damage. Þessi var tekin að loknu formlegu smakki. Náðum með því 8. vínhéraðinu og jafnframt því syðsta. Svona í framhaldi af því að ég sagði að þetta vín væri ekki allra þá datt inn ein einkunn í dag þar sem einhver smakkari gaf þessu víni 60 stig (við erum að tala um Parker skala sem nær frá 50 upp í 100. 60 er mjög slæm einkunn). Og bæ ðu vei þá eru allar einkunnir sem ég hef gefið skv. þeim skala.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Mér fannst þetta mjög skemmtilegt smakk. Það kom berlega í ljós hvað Spánn er flott vínland. Bestu kaupin eru án efa Gavilán frá Ribera del Duero sem kostar um 2900 kr. Flott vín á frábæru verði (sorrý Bragi Valdimar) enda fannst sumum smakkendum það besta vínið. Mér fannst nú samt síðasta vínið skara fram úr.
Daði kom svo með tvær flöskur af Mikkeler Beer Geek Breakfast bjór og smökkuðum við á þeim eftir að spænsku vínin höfðu verið tekin til kostanna. Virkilega góður bjór, eins og við mátti búast frá Mikkeler.

×
×