Eðalklúbbur, vínsmakk #1 vor 2015

Marbakkabraut 12
Tasted Friday, February 6, 2015 by bitdrerik with 559 views

Introduction

Að þessu sinni var smakkið í tvennu lagi. Fyrst var lóðrétt, smakk með fjórum árgöngum af Clos de l'Oratoire. Þau vín voru smökkuð í árgangaröð, yngsta fyrst og endað á því elsta. Í seinni hluta smakksins voru svo smökkuð blint fjögur vín, sem ýmist komu frá suður eða norður Rhône ásamt einum jóker. Smakkendur að þessu sinni voru Indriði, Björgvin, Bolli, Jón Loftur, Sverrir, Ólafur Andri og Jón Lárus.

Flight 1 - Lóðrétt Clos de l'Oratoire smakk. (4 Notes)

  • 2012 Clos de l'Oratoire des Papes Châteauneuf-du-Pape 89 Points

    France, Rhône, Southern Rhône, Châteauneuf-du-Pape

    Fyrsta flaskan í lóðréttu Clos de l'Oratoire smakki með fjórum árgöngum. Rústrauður litur. Í nefi rauð ber, jarðartónar og krydd (pipar). Ágætis sýra í munni. Prýðisgott jafnvægi Rauðir ávextir, plómur, kryddtónar. Ungt.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2011 Clos de l'Oratoire des Papes Châteauneuf-du-Pape 90 Points

    France, Rhône, Southern Rhône, Châteauneuf-du-Pape

    Önnur Clos de l'Oratoire flaskan. Rústrauður litur, mjög svipaður og 2012. Þyngri og höfugri ilmur, jörð, dökk ber og skógarbotn. Mun opnara en 2012. Í munni sætara en 2012. Plómur, kirsuber? og jafnvel kaffi í lokin. Þetta vín kom líklega mest á óvart af Oratoire vínunum, því þessi árgangur er ekki eins góður og 2009 og 2010. Engu að síður framúrskarandi gott vín. Sumum smakkendum fannst þetta best af Oratoire vínunum. Ég set það í annað sæti.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2010 Clos de l'Oratoire des Papes Châteauneuf-du-Pape 91 Points

    France, Rhône, Southern Rhône, Châteauneuf-du-Pape

    Þriðja vínið í Clos de l'Oratoire smakkinu. Litur ýfið dekkri en 2012 og 2011. Glæsilegur ilmur, fágaður og flottur með skógarbotni og smjörsteiktum sveppum. Flottasti ilmur kvöldsins. Betra jafnvægi en hjá 2011, talsverð tannín og ekki eins sýruríkt og 2011. Bragðið stóð ekki alveg undir því sem ilmurinn lofaði. Gott engu að síður. Skiptar skoðanir voru um hvert Oratoire vínanna væri best. Sumum m.a. Bolla fannst 2011 best en mér fannst þetta flottast.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2009 Clos de l'Oratoire des Papes Châteauneuf-du-Pape 89 Points

    France, Rhône, Southern Rhône, Châteauneuf-du-Pape

    Fjórða og síðasta Oratoire flaskan. Svipaður litur og hjá 2010. Dökk ber, skógarbotn í ilmi. Einnig krydd. Ilmurinn miklu dempaðri og ekki eins fágaður og hjá 2010. Plóma, dökkir ávextir jafnvel kaffi í munni. Var eins og vantaði karakter í þetta vín og það var pínu hrjúft. Þetta voru að mínu mati mestu vonbrigðin í Oratoire smakkinu því 2009 árgangurinn á að vera í nánast sama klassa og 2010. Vínið var það hins vegar ekki. Sérstaklega ekki ilmurinn.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - Blindsmakkaður samtíningur frá norður og suður Rhône ásamt einum jóker til að gera lífið aðeins meira spennandi. (4 Notes)

  • 2012 Casa Gran del Siurana Priorat GR-174 86 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Litur mjög dökkur. Í nefi, fjós, jörð, kaffi og sæta. Dökk ber í munni ásamt kaffi í eftirbragði. Áberandi sæta. Ekki mikil ending og tannín lítt merkjanleg. Það spunnust talsverðar umræður um þetta vín og að lokum endaði hópurinn á Priorat, Sverrir nefndi það fyrstur og var það vegna WD-40 áhrifanna. Vel gert að ná jókernum, strákar.
    Ég valdi jókerinn bæði út frá þrúgunni í honum (Mourvedre) og einnig vegna þess að flöskulagið var það sama og á hinum flöskunum í smakkinu. Ég var ekkert sérstaklega hrifinn af þessu víni. Gæti verið að 2012 sé ekkert sérstaklega góður árgangur. Ég hef að minnsta kosti verið hrifnari af GR-174 áður.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2009 E. Guigal Châteauneuf-du-Pape 92 Points

    France, Rhône, Southern Rhône, Châteauneuf-du-Pape

    Frekar ljós litur. Ilmurinn bar með sér meðal annars fjós og reyk. Ávöxtur ekki áberandi. Flottur ilmur, sá næstflottasti í smakkinu. Í munni mjúk tannín, lakkrís, krydd, jafnvel jarðarber. Skrjáfþurrt og í virkilega fínu jafnvægi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2011 Delas Frères Crozes-Hermitage Les Launes Flawed

    France, Rhône, Northern Rhône, Crozes-Hermitage

    Frekar dökkur litur. Hlutlaus ilmur, aseton ef eitthvað. Þegar vínið var smakkað þá kom í ljós örlítill korkur. Mjög svekkjandi því ég var mjög spenntur fyrir þessu víni. En allavega vínið var ekki það mikið skemmt að það tæki því að fara að skila því.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2008 E. Guigal Côte-Rôtie Brune et Blonde 91 Points

    France, Rhône, Northern Rhône, Côte-Rôtie

    Síðasta flaskan í hefðbundnu smakki. Svipað á litinn og 6. flaskan. Smá ryð komið í jaðra. Í nefi rauð ber, blóðlykt! Í munni sýru og tannínríkt. Rauð ber, anísbrjóstsykur, krydd, kanill og vanilla. Vín í mjög góðu jafnvægi.
    Sumum fannst þetta vín vera besta vín kvöldsins. Fyrir minn smekk hafði þó 6. vínið (Guigal CdP 2009) vinninginn. Meiri kraftur hér en hitt vínið fágaðra. Þetta vín er engu að síður mjög gott. Ég væri alveg til í að smakka 2009 eða 10 árganginn af þessu víni, fyrst 2008 var svona góður.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Collateral damage... (2 Notes)

  • 2012 Vintae Toro Matsu El Picaro 86 Points

    Spain, Castilla y León, Toro

    Að loknu hefðbundnu smakki voru dregnar fram tvær flöskur af Indriða. Þessi er frá Toro héraðinu á Spáni (ekki langt frá Ribera del Duero). Alveg glettilega gott vín miðað við að það kostar innan við 2.000 kr. Ég er hins vegar ekki viss um að ég hefði þorað að kaupa þetta vín út af miðanum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2008 Bodegas Muriel Rioja Reserva Vendemia Especial 88 Points

    Spain, La Rioja, Rioja

    Hitt vínið sem opnað var í lokin var frá Rioja. Talsvert meira vín en Toro vínið en líka talsvert dýrara. Líklega nokkuð góð kaup samt.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Alltaf gaman að taka lóðrétt smakk. Clos de l'Oratoire vínin stóðu vel fyrir sínu fannst mér. Áhugavert að smakka svo önnur vín frá sama svæði. Guigal greinilega traustur framleiðandi. Mjög svekkjandi að Delas vínið skyldi vera skemmt. Ég var mjög spenntur að smakka það því ég er svo hrifinn af Côtes du Rhône víninu frá þeim. Verð bara að drífa í að tékka á því aftur. Svo var það vel gert hjá hópnum að ná svæðinu sem jókerinn var frá.

×
×