Marbakkabraut 12
Tasted Friday, March 13, 2015 by bitdrerik with 477 views
Eins og stundum áður var smakkinu skipt upp í tvo hluta. Í fyrri hlutanum voru smökkuð þrjú vín, blint, frá svæðum sem ekki voru gefin upp. Þessi vín áttu að vera í ódýrari kantinum þ.e.a.s. ekki dýrari en ca. 2.500 kr. Í seinni hluta smakksins voru svo smökkuð dýrari vín frá þessum sömu svæðum, líka blint. Í seinni hlutanum voru vínin ekki afhjúpuð fyrr en búið var að smakka öll þrjú vínin.frá suður eða norður Rhône ásamt einum jóker. Smakkendur að þessu sinni voru Indriði, Björgvin, Bolli, Jón Loftur, Sverrir, Ólafur Andri og Jón Lárus.
Skemmtilegt og lærdómsríkt smakk. Hlakka til þess næsta.
2012 Wyndham Estate Shiraz Bin 555 87 Points
Australia, South Eastern
Fyrsta flaska af þremur í fyrri hluta blindsmakks. Meðaldökkt, ungt á litinn. Ljós ber og vanilla í ilmi. Vatnsmelónur, fersk sýra, smá sæta, síðan súkkulaði og vanilla í bragði. Eftir smá stund í glasi þá komu fram aseton tónar í ilmi. Þægilegt vín.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2012 Columbia Crest Cabernet Sauvignon Two Vines 84 Points
USA, Washington, Columbia Valley
Önnur flaska af þremur í fyrri hluta blindsmakks. Örlítið dekkra en fyrsta vínið virtist heldur eldra á litinn en var það ekki. Flottur en látlaus ilmur, m.a. blómailmur (fjólur) og smá sveit. Í munni dökk ber, hunang (mikil sæta) og talsverð vanilla. Eftir smá stund í glasi fór sætan að ágerast. Einhver kallaði þetta kóka kóla vín m.a.s! Vann síður en svo á.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2014 Finca Las Moras Malbec Intis 79 Points
Argentina, San Juan
Síðasta vínið í fyrri hluta smakksins. Mjög ljóst á litinn. Reyndar svo ljóst að sumir létu gabbast og töldu þetta vera pinot noir (ég meðtalinn). Lítill ilmur til að byrja með. Rifsber, sólber og jarðarber í bragði. Einnig óþroskaðir grænir tónar. Frekar súrt. Eftir smá stund þá var einhver sem talaði um að það væri pústlykt af víninu. Ekki hægt að mæla með þessu víni.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No