Eðalklúbbur, vínsmakk #1 haust 2015

Stakkhamrar 11
Tasted Friday, October 23, 2015 by bitdrerik with 352 views

Introduction

Nokkrir fulltrúar Eðalklúbbsins fóru í viku langa vínsmökkunarferð til Spánar í byrjun september. Nú var komið að því að smakka nokkur vín sem þeir fluttu heim með sér. Vínin voru ekki smökkuð blint ólíkt því sem venjulega tíðkast hjá klúbbnum. Smakkendur voru Indriði, Siggi, Björgvin, Bolli, Jón Loftur, Sverrir, Ólafur Andri, Lúðvík og Jón Lárus.

Flight 1 - Spánn í öllu sínu veldi (9 Notes)

  • 2012 Bodegas Betolaza Rioja Crianza 80 Points

    Spain, La Rioja, Rioja

    Brekkuvínið svokallaða. Einfalt og frekar hrátt vín. Ekki slæmt samt. Allt í lagi sem borðvín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2012 Agricola Labastida Rioja Tierra Fidel Blanco 84 Points

    Spain, La Rioja, Rioja

    Ákveðin tímamót hér. Þetta er fyrsta hvítvínið sem hefur verið tekið til smökkunar síðan ég byrjaði í vínklúbbnum, haustið 2009. Hvað um það. Þetta er alveg ágætasta hvítvín. Þurrt, ferskt og frísklegt. Það mátti finna þarna sítrustóna og jafnvel smjörglefsur. Það var talað um það að þetta minnti á Búrgundarhvítvín, sem er ekki slæmt.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2012 Bodegas Sierra Cantabria Rioja Colección Privada 84 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja

    Þungur ilmur. Mikill ávöxtur, vanilla og sæta í bragði. Virtist vera í fínu jafnvægi til að byrja með en eftir því sem á leið fór vínið að verða kantaðra og óheflaðra. Þetta er náttúrlega ungt ennþá og gæti átt eftir að rúnnast.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 Descendientes de José Palacios Bierzo Pétalos 86 Points

    Spain, Castilla y León, Bierzo

    Flottur ilmur, fjólur og þroskaður ostur. Mjög ferskt, líklega ekki ætlað til geymslu. Bragðgott í byrjun en eftir því sem sopum fjölgaði kom fram beiskja í eftirbragði. Strax og ég smakkaði þetta vín þá tengdi ég það við önd. Ég held að þetta vín og önd myndu smellpassa saman.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2011 Celler Francisco Castillo Priorat Vinyes Baixes Clos Dominic 89 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Flókinn ilmur, jarðarkenndur aðallega. Í bragði eru sveskjur áberandi. Mikil sæta. Þó vínið sé ekki nema fjögurra ára gamalt þá var komin smá brúnka í jaðrana. Spurning hvað þetta vín geymist lengi?

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2011 Bodegas Exeo Garnacha Rioja Cifras 87 Points

    Spain, La Rioja, Rioja

    Hreint garnacha vín. Mói og sveit í ilmi. Mjög kryddað bragð. Mikil sýra og tannín áberandi. Sérstakt vín en alveg ágætt.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2006 Bodegas Muga Rioja Prado Enea Gran Reserva 93 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja

    Frekar dökkt á litinn. Mjög skemmtilegur ilmur. Fjós meðal annars. í munni aðallega kirsuber. Frábært vín. Flauelsmjúkt og í mjög góðu jafnvægi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2011 Hermanos Pérez Pascuas Ribera del Duero La Navilla Reserva Viña Pedrosa 92 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Virkilega fínt vín. Mikil sveit í ilmi. Í bragði frekar mikil sæta. Dökk ber.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2005 Agricola Labastida Rioja El Belisario 94 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alavesa, Rioja

    Gleymdi að skrá hjá mér árgang á þessu víni. Laga það ef upplýsingar um réttan árgang koma fram. Allavega, hér vorum við með frábært vín. Í nefi fann maður blómailm, einnig kom fyrir grænn ilmur. Lyktin almennt mjög fersk. Í munni mikil fylling. Vínið var mjög ferskt og hnitmiðað. Silkimjúkt og unun að fá að smakka þetta vín. Ég hafði aldrei heyrt af þessari víngerð fyrir þetta vínsmakk. Engu að síður var þetta að mínu mati besta vín kvöldsins. Sló út mjög góðan árgang af Prado Enea og þarf nú ekki lítið til.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - Í lokin var þessari hent inn í smakkið. (1 Note)

Closing

Þetta var mjög skemmtilegt smakk. Við fengum að bragða á mörgum vínum sem eru ófáanleg hér á klakanum nema menn bregði sér til Spánar og sæki þau. Að öðrum vínum ólöstuðum þá fannst mér tvö vín standa upp úr. Muga Prado Enea og El Belisario frá Bodega Tierra voru bæði virkilega flott. El Belisario fannst mér vera toppurinn á öllum þeim vínum sem við smökkuðum að þessu sinni.

×
×