Marbakkabraut 12
Tasted Friday, November 20, 2015 by bitdrerik with 455 views
Jólavínsmakk Eðalklúbbsins. Eins og oftast var smakkað blint. Drekkendur að þessu sinni voru: Indriði, Björgvin, Ólafur Andri, Lúðvík, Jón Loftur og Jón Lárus.
Mjög áhugavert smakk. Það voru fjögur vín sem voru áberandi best og erfitt að gera upp á milli þeirra þótt þau væru mjög ólík. Mér fannst áhugaverðast að smakka Bordeaux frá 2010. Hvað meðalgóður framleiðandi getur búið til fantagott vín þegar aðstæður eru réttar. Torre Muga var líka mjög spennandi. Allt öðruvísi. Sveitalegt og hrjúft en mjög gott engu að síður.
Mér fannst við standa okkur nokkuð vel að nálgast rétta staði. Áttum reyndar í erfiðleikum með zinfandelinn. En náðum syrah víninu og Bordeaux víninu. Vorum líka heitir í hinum þremur.
2014 Domaine de La Baume Syrah 87 Points
France, Languedoc Roussillon, Vin de Pays d'Oc
Frekar dökkur litur. Lítur út fyrir að vera ungt. Mikill fjólublámi. Í ilmi mikill ávöxtur. Kröftugur ilmur. Sýrumikið. Frekar þungt. Reykur, krydd, pipar, paprika. Eftir svolitla stund í glasinu kom vottur af sveitalykt.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2012 Ridge Geyserville 89 Points
USA, California, Sonoma County
Talsvert ljósara en fyrsta vínið. Í nefi leysiefni, brjóstsykur, sæta, eik (vindlakassinn). Í bragðinu mátti finna vanillu, eik, fenóla. Vínið er sýruríkt og kröftugt. Fín tannín. Í byrjun var þetta vín mjög sérstakt. Ég byrjaði á að gefa því 85-86. Lét það svo standa í glasinu nokkra stund þá var kominn allt annar bragur á vínið. Greinilegt að það er nauðsynlegt að umhella því. Græðir 3-4 punkta á því.
Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No
2006 Bodegas Muga Rioja Torre Muga 92 Points
Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja
Meðaldökkur litur. Leit út fyrir að vera ungt en það var tálsýn. Í ilmi má finna sveit, jarðartóna og dökka ávexti. Í bragði mátti finna ristað bragð, smá sætu, dökka ávexti. Fantagott vín. Svolítið hrjúft en ákaflega viðfelldið.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2007 Casa Gran del Siurana Priorat Gran Cruor 92 Points
Spain, Catalunya, Priorat
Meðaldökkt á litinn. Í nefi: Sveitailmur, leysiefni, sætur brenndur ilmur (ristuð eik?). Sæta, vanilla, plómur, dökkir ávextir. Smá biturleiki í lokin. Mjög flott jafnvægi. Vínið er líklega búið að ná toppi en ætti að haldast á þessu stigi í nokkur ár í viðbót. Fínt vín.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2004 G.D. Vajra Barolo Bricco delle Viole 92 Points
Italy, Piedmont, Langhe, Barolo
Ljóst á litinn. Komnir smá brúnir tónar í jaðra. Í nefi frekar lokað. Lítill ilmur. Anís það helsta. Í bragði steinefni, jarðarber, smá sæta. Fíngert og fágað bragð. Flauelsmjúkt vín í flottu jafnvægi. Þetta er vín sem er líklega komið á toppinn en á örugglega 5-8 góð ár eftir.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2010 Château Tour Pibran 91 Points
France, Bordeaux, Médoc, Pauillac
Meðaldökkur litur. Mjög fíngerður ilmur. Flókinn og fágaður. Jarðartónar, skógarbotn. Langflottasti ilmur kvöldsins. Í munni kröftugt, sólber, steinefni. Flott jafnvægi. Vín sem sýnir hversu góður 2010 árgangurinn er því þrátt fyrir að Tour Pibran sé ekkert sérstaklega hátt skrifað hús þá er hér þrusugott vín á ferðinni. Er líka á tiltölulega hagstæðu verði.
Read 1 Comment / Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No