Marbakkabraut 12
Tasted Friday, December 2, 2016 by bitdrerik with 546 views
Að þessu sinni var aðalfókusinn á Frakkland. Kampavínshéraðið og Bordeaux. Eitthvað smávegis slæddist með frá Spáni og svo var þriggja flösku lóðrétt smakk af Clos Apalta frá Casa Lapostolle. Við smökkuðum ekki nema hluta af vínunum blint enda smakkið þess eðlis að það var erfitt að koma því við. Smakkarar voru: Björgvin, Bolli, Indriði, Jón Lárus, Lúðvík, Magnús, Ólafur Andri og Sverrir.
Algerlega frábært smakk. Ég held að þetta sé óumdeilanlega flottasta smakk frá því ég byrjaði í vínklúbbnum og hafa þau þó mörg verið flott. Mér fannst bæði Clinet og Rôteboeuf frábær. Fyrir minn smekk var Clinet vín kvöldsins. Mjög áhugavert að smakka Clos Apalta línuna og svo slæddist eitt framúrskarandi Priorat vín með ostasmakkinu.
NV Gosset Champagne Brut Grande Réserve 90 Points
France, Champagne
Kampavín í ódýrari kantinum frá mjög flottum framleiðanda, Gosset. Í nefi mátti meðal annars greina smjör, eplaedik, kex og ger. Bólurnar smáar eins og þær eiga að vera í kampavíni. Í bragði mátti svo finna ávexti (eplatónar?) vott af marsípani eða núggati og Bolli talaði um kakó. Sýruríkt en alls ekki um of. Mjög flott kampavín á hagstæðu verði.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2002 Bollinger Champagne La Grande Année 94 Points
France, Champagne
Seinna kampavínið sem við smökkuðum var ekki af verri endanum. Bollinger Grande Anné af mjög flottum árgangi. Ilmur er ekki mikill en þó mátti finna ostalykt eins og af vel þroskuðum osti. Bólurnar litlar, ekkert rosalega mikið gos. Mjög flott jafnvægi. Brauð, ger, hnetur og sérrítónar í bragði. Virkilega gott kampavín.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No