Marbakkabraut 12
Tasted Friday, March 24, 2017 by bitdrerik with 295 views
Smakk að þessu sinni samanstóð af 4 mismunandi árgöngum af Perelada Gran Claustro og svo bland í poka frá Vínfreði í Tarragona. Lóðrétta smakkið var ekki blint. Síðari hlutinn var svo aftur á móti smakkaður blint. Það var þó vitað að öll vínin væru spænsk. Smakkarar voru í þetta skiptið: Björgvin, Indriði, Lúðvík, Ólafur Andri, Magnús, Jón Loftur og Jón Lárus.
Áhugavert smakk. Stundum hafa þó verið flottari toppar í smökkum. Hér voru gæðin tiltölulega jöfn. Ekkert slakt vín en heldur engar stjörnur. Ég held að niðurstaðan úr lóðrétta smakkinu sé sú að drykkjargluggi á Gran Claustro sé svona 8-17 ár. Mér fundust þau öll góð, þó var 2010 síst að mínu áliti. Það var líka pínulítið önnur skepna en hin þrjú, allt önnur blanda af þrúgum. Hvað hin spænsku vínin áhrærir þá var ég hrifnastur af því síðasta Clos Figueres. Ég væri til í að smakka slíkt vín sem væri orðið þroskað. 2013 árgangurinn var svolítið hrár þótt hann lofaði góðu.
2010 Perelada Empordà Gran Claustro 91 Points
Spain, Catalunya, Empordà
Meðaldökkur litur. Flottur, bjartur ilmur. Rauð ber, smá eik, fjós. Frekar ungt í bragði. Svolítið grænt og stamt. Rauð ber, anís, krydd (pipar) áberandi í bragði. Góð fylling. Sýruríkt. Í eftirbragði pipar og lakkrís. Framþungt.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2009 Perelada Empordà Gran Claustro 92 Points
Spain, Catalunya, Empordà
Við ættum nú að vera farnir að kannast við þetta vín. Þetta er þriðja skiptið á einu ári sem við höfum smakkað það. Liturinn er mjög svipaður og á 2010. Meðaldökkur. Mjög aðlaðandi ilmur samt frekar lokað. Miðað við árganginn á undan þá er þetta vín í betra jafnvægi. Bragðglefsur sem komu fram voru: Reykjarbragð, dökk ber (brómber). Síðan kom anís og pipar í lokin. Mun minni sýra í þessu víni en í 2010.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2005 Perelada Empordà Gran Claustro 92 Points
Spain, Catalunya, Empordà
Mjög svipaður litur og á 2009 og 2010, meðaldökkur. Farin að sjást smá brúnka í jöðrum. Vanilla og sæta í ilmi. Ekki miklir ávextir. Á tungu: Dökkir ávextir, dökk ber. Ber svolítið á remmu. Tannín alveg vel til staðar þannig að vínið á eitthvað eftir. Mikil skyldleikaeinkenni með 2009 árganginum. Síður með 2010.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2003 Perelada Empordà Gran Claustro 92 Points
Spain, Catalunya, Empordà
Þetta vín fór mjög hægt af stað. Liturinn var örlítið ljósari en á fyrri árgöngum af sama víni. Mjög lokað til að byrja með en eftir þyrlun komu fram eikartónar og mjög dökkir ávextir. Vínið er sýruríkt, mjög eikað og það er mikil sæta í bragði (þetta var náttúrlega mjög heitt ár á öllu meginlandi Evrópu). Flott jafnvægi. Eftir smá dvöl í glasi þá lifnaði yfir víninu og það opnaðist talsvert. Þegar flaskan var opnuð þá brotnaði tappinn. Þegar brotin voru skoðuð þá kom í ljós að víntaumar náðu orðið í gegnum allan tappann. Vínið hefði því tæplega átt langt líf fyrir höndum. Samt voru engin ellimerki á því.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No