Eðalklúbbur, vínsmakk #4 haust 2017

Marbakkabraut 12
Tasted Friday, December 15, 2017 by bitdrerik with 375 views

Introduction

Jólasmakk Eðalklúbbsins. Byrjuðum á ostum. Með þeim sérrí og sætvín. Síðan í miðju smakkinu foie gras í boði Bolla og skinkur. Smakkarar í þetta skiptið voru: Indriði, Björgvin, Lúðvík, Magnús, Bolli, Jón Loftur og Jón Lárus.

Flight 1 - Kampavín til að keyra stemmninguna í gang. (1 Note)

  • 2000 Taittinger Champagne Comtes de Champagne Blanc de Blancs Brut 94 Points

    France, Champagne

    Vínklúbbur, jólasmakk. Eftir að hafa byrjað á að smakka dísætt sérrí og sætvín frá Alto Adige þá óðum við beint í kampavín. Comtes stóð sig hreint frábærlega. Orðið fullþroskað, batnar varla úr þessu en gíðarlega gott og ætti að geta haldist svona í allavega fimm ár í viðbót. Drukkið úr pinot noir glösum. Mikill ilmur. Pínulitlar bólur. Flott jafnvægi og mjög fíngert. Týpískir chardonnay tónar ekki áberandi í nefi en m.a. heyrðist fois gras, hnetur og sítrus. Síðan fengum við ristað brauð, möndlur, hnetur og marsipan í bragði.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - Nokkur rauð. Kynning á lagrein. (5 Notes)

  • 2011 Bodegas Godelia Bierzo 89 Points

    Spain, Castilla y León, Bierzo

    Frekar dökkt á litinn. Ekki mikill ilmur að minnsta kosti ekki til að byrja með. Kirsuber, dökkir ávextir í bragði. Mikið krydd. Við áttum í erfiðleikum með að átta okkur á þrúgunni. Ekki kannski skrítið því þarna var um að ræða mencía sem er ekki algeng þrúga. Virkilega gott vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 Vinyes Domenech Montsant Furvus 87 Points

    Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant

    Frekar dökkt á litinn. Ilmur af dökkum ávöxtum, smá reyktar glefsur líka. Rúnnað og þægilegt í munni. Tannín mjúk. ágætis vín. Við vorum ekki vissir um hvort við hefðum smakkað þetta vín áður en Magnús var með þetta allt skráð. Höfðum smakkað það á veitingastað í haust (reyndar var það 2014 árgangurinn).

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2016 Kellerei Bozen / Cantina Bolzano Lagrein Perl 82 Points

    Italy, Trentino-Alto Adige, Alto Adige, Alto Adige - Südtirol

    Frekar dökkur litur. Í nefi tyggjó (tutti frutti), grænjaxlar, harpix, Talsverður kraftur í bragði, banani (sæta), jarðartónar. Þetta var ódýrasta lagrein flaskan í smakkinu og var langt frá því að heilla mig.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2014 Duckhorn Vineyards Chardonnay Napa Valley

    USA, California, Napa Valley

    Fáránlega ljóst á litinn. Í ilminum jarðarber (niðursoðin Krakus). Í bragði ananas, örlítil eik. Ananasinn í bragði hefði náttúrlega átt að vekja grunsemdir. Við fórum semsagt að reyna að finna út hvaða þrúga gæti gefið af sér svona ljósan lit án þess að komast að skynsamlegri niðurstöðu. Þegar vínið var svo afhjúpað þá kom í ljós að Björgvin var að spila með okkur. Þetta var gott chardonnay vín litað með vínlit!

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2007 Bodegas Valduero Ribera del Duero Una Cepa 85 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Meðaldökkur litur. Pínu ryðlitaðir jaðrar. Ekki ungt. Vanilla, smíðaverkstæði, leysiefni í ilmi. Á tungunni banani, sveskjur og eikartónar. Eftir smá stund í glasi var varla að finna neitt nema eik. Þegar hulunni var svipt af flöskunni urðum við mjög hissa því þetta vín hefði átt að sýna flottari frammistöðu en þetta. Vínið stendur engan veginn undir verðmiðanum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Sætvín með foie gras. (1 Note)

  • 2003 Château Guiraud 92 Points

    France, Bordeaux, Sauternais, Sauternes

    Drukkin með tvenns konar foie gras. Annars vegar anda og hins vegar gæsa (væntanlega heitir gæsaútgáfan ekki formlega fois gras) en allavega. Það voru ekki teknar neinar nótur þannig lagað en vínið féll eins og flís við rass með fg-inu. Ekki neitt stórkostlegt sauternes en passaði samt fullkomlega við í þessu tilviki.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

Flight 4 - Lokað með nokkrum rauðum. (5 Notes)

  • 2015 Kellerei Bozen / Cantina Bolzano Alto Adige - Südtirol Grieser Riserva 87 Points

    Italy, Trentino-Alto Adige, Alto Adige, Alto Adige - Südtirol

    Frekar dökkt á litinn. Ekki mikill ilmur. Samt sætutónar og kaffi. Frekar lokað. Á tungunni mikill ávöxtur og mikil eik. Við vorum ekkert vissir um hvað þetta væri en svo kom í ljós að þetta væri önnur lagrein flaska. Talsverð framför frá þeirri fyrstu en ég var enn ekkert yfir mig hrifinn.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2010 Celler Prior Pons Priorat 92 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Frekar dökkur litur. Lítur út fyrir að vera ungur. Virkilega flottur ilmur, feitur og pattaralegur. Píputóbak, karamella og sæta. Mjúkt og þægilegt í munni. Jarðartónar ráðandi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2015 Kellerei Bozen / Cantina Bolzano Lagrein Alto Adige - Südtirol Riserva Taber 89 Points

    Italy, Trentino-Alto Adige, Alto Adige, Alto Adige - Südtirol

    Vínið var frekar dökkt. Mjög grænir tónar í ilmi, harpix. Í munni mjög kryddað, pipar og negull. Ekkert rosalega spennandi í byrjun en vinnur mjög á í glasi. Væri spennandi að prófa þetta vín eftir fjögur til fimm ár.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 Duckhorn Vineyards Merlot Napa Valley 92 Points

    USA, California, Napa Valley

    Meðaldökkur litur eða jafnvel aðeins í ljósari kantinum. Plómulykt, lím í nefi en samt frekar lokað. Í munni dökkir tónar. Súkkulaði og kaffi greinilegt. Talsverð sýra og frekar grænt í munni. Líklega aðeins of ungt. Lofar samt mjög góðu.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2014 Sao del Coster Priorat Terram 91 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Meðaldökkur litur. Lítur út fyrir að vera ungur. Rauð ber, kirsuber og lím (jötungrip) og eðalviður (mahogny, Bolli) í ilmi. Á tungunni kirsuber, súkkulaði 70%, kaffi. Virkilega fínt vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Fullt, fullt af góðum mat og góðu víni. Lagrein þrúgan heillaði mig ekki en hún gæti samt komið betur út með meiri þroska. Björgvin stríddi okkur svo með hlut sem var ekki til.

×
×