Hlíðarás 10
Tasted Friday, May 25, 2018 by bitdrerik with 266 views
Að þessu sinni var þemað með áherslu á tvö spænsk svæði. Toro og Ribera del Duero. Að auki var byrjað á óþekktu víni sem allir áttu að geta spottað. Vínin voru smökkuð blint nema síðasta flaskan sem Bolli dró fram í lokin. Smakkarar voru: Bolli, Björgvin, Lúðvík, Ólafur Andri, Jón Loftur og Jón Lárus.
Óþekkta vínið olli okkur miklum heilabrotum. Við áttuðum okkur engan veginn á því. Bolli komst þó næst því. Annars sköruðu þrjú vín, öll frá Ribera , fram úr í þessu smakki. Mér fannst Carraoviejo vínið best en Aalto var ekki langt undan.
2015 KWV Roodeberg 79 Points
South Africa, Western Cape
Meðaldökkt, grillir í penna sem er haldið undir glasinu. Ungur litur. Við giskuðum á 2014-15 og var það nærri lagi. Talsverð sýru og sprittlykt í byrjun. Eftir þyrlun komu fram jörð, dökkir ávextir og berjahrat. Á tungu mjög mikil sýra, hundasúra, sveskjugrautur, brennt kaffibragð. Mjög óspennandi vín. Við vorum alveg úti á þekju hvað þetta vín varðaði. Bolli komst þó næst því. Við afskrifuðum S-Afríku vegna þess að okkur fannst vanta sandbragðið. Kannski var þetta vín bara svo lélegt að sandbragðið er ekki byrjað. Allavega þá eru þetta skelfileg kaup fyrir 2.300 kall.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No