Marbakkabraut 12
Tasted Friday, December 7, 2018 by bitdrerik with 351 views
Að þessu sinni kenndi margra grasa í jólasmakki klúbbsins. Það var aðeins tékkað á Bandaríkjunum. Gerður smá stans í Rioja. Einnig var smá nasasjón af Brandíum. Ásamt fleiru. Smakkarar að þessu sinni voru: Indriði, Bolli, Magnús, Lúðvík, Björgvin og Jón Lárus.
Það voru nú ansi mörg góð vín í boði að þessu sinni. Fyrir mig þá voru fjögur vín sem stóðu upp úr: Diora, Beringer, Ridge og Ygay. Diora var fyrir mig eitt af þremur bestu vínunum sem öll voru frábær. Mér finnst það samt eiga toppsætið skilið því það er á helmingi af verði Beringer og Ridge Cab. Sauv. og fæst líka núna í ríkinu. Ygay var líka magnað en á örugglega eftir að verða miklu flottara í framtíðinni. Svo má náttúrlega ekki gleyma hinu stórgóða brandíi frá Ximenez 3000 flöskur.
2015 Bodegas Mas Alta Priorat Els Pics 86 Points
Spain, Catalunya, Priorat
Þessi var opnuð til að ræsa jólasmakk vínklúbbsins. Ekkert sérstaklega dökkt á litinn. Sæta í ilmi. Mjög viðkunnanlegur. Í munni dökk ber. Ekki langt. Einfalt en gott vín.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No