Hlíðarás 10
Tasted Friday, January 25, 2019 by bitdrerik with 232 views
Meginþemað í þessu smakki var portúgölsk vín. Annað þema, smærra í sniðum, var hvítvín og greining á þrúgum í þeim. Einnig slæddust með (mjög óvænt) nokkrir jókerar. Veit ekki alveg af hverju við verðum alltaf jafn hissa þegar jókerarnir eru dregnir upp úr sekknum.
Smakkendur að þessu sinni voru: Stéphane Aubergy, Bolli, Indriði, Björgvin, Lúðvík, Jón Loftur og Jón Lárus. Vínin voru smökkuð blint.
Skemmtilegt smakk. Ég er með allt aðra og jákvæðari sýn á portúgölsk vín eftir smakkið. Fyrir mig og ég held að það gildi nú um flesta þá stóð Quinta da Romaneira Reserva upp úr. Virkilega gott vín. Skemmtileg nýbreytni svo að hafa smá hvítvínshorn með.
2016 Domaine Muré Gewurztraminer
France, Alsace
Ljós litur. Þægilegur kryddaður ilmur. Svo þegar smakkað: Yllir, hunang, perubrjóstsykur. Sætt á tungu.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2016 Brancott Estate Sauvignon Blanc Letter Series "B"
New Zealand, South Island, Marlborough
Ljósara á litinn heldur en gewurztraminerinn sem við byrjuðum á. Mjög dæmigerður nýja heims sauvignon blanc. Kattarhland og stikilsber í ilmi. Greipávöxtur í bragði. Mjög fínt vín.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2016 Lua Cheia em Vinhas Velhas Alvarinho Nostalgia
Portugal, Minho, Vinho Verde
Svipaður litur og á fyrri tveimur hvítvínunum. Þungur ilmur. Keita, saggi, brennisteinn. Steinefni áberandi. Sítrus í munni, greip. Flott jafnvægi. Góð sýra. Örugglega flott matarvín. Til dæmis með skelfiski.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No