More Coravin Craze.

Njálsgata 6
Tasted Thursday, April 18, 2019 by bitdrerik with 296 views

Introduction

Við ákváðum að skella í eitt þokkalegt Coravin smakk. Ég tíndi til fimm flöskur úr kjallaranum og Bjarki kom svo með eina flösku, færandi hendi. Alls sex vín sem voru prófuð að þessu sinni.

Flight 1 - Nokkur spennandi vín tekin út með Coravin. (6 Notes)

  • 2010 Domaine Arnoux-Lachaux Echezeaux 95 Points

    France, Burgundy, Côte de Nuits, Echezeaux Grand Cru

    Ljós litur, ekta pinot. Feimið í fyrstu en svo komu fram sveit, fjárhús. Rauð ber, jarðarber, rifsber. Blómailmur. Á tungunni mjög fágað. Mjúkt og með mikinn ferskleika. Jarðarber, mynta í bragði. Frábært vín sem stóð alveg í boltum sem voru smakkaðir síðar.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2015 En Numeros Vermells Priorat Etiqueta Negra 93 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Flaska nr. 563 af 1.711. Meðaldökkur litur. Ilmurinn bar með sér dökka ávexti, plómur. Sveskjur jafnvel. Þungur sætur og höfugur ilmur. Í munni voru svo kryddaðir tónar. Líka brá fyrir sótsvörtum ávöxtum. Svörtum plómum. Þarna voru líka steinefni. Mjúk tannín. Vín í flottu jafnvægi og algerlega tilbúið til drykkjar. Ætti að endast í 5-6 ár í viðbót og jafnvel bæta við sig eins og einu stigi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 Clos Mogador Priorat 94 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Örlítið dekkra en vínið frá Silvíu sem smakkað var á undan. Í nefinu blek, marsípan, sætir tónar. Þegar bragðað var á víninu þá voru tannínin mun meira áberandi heldur en í víninu á undan. Samt ekki óþægileg. Voru bara þarna. Þarna voru mjög dökkir ávextir og svo þegar fór að líða á dökkir tónar, súkkulaði eða kaffi kannski? Ef drukkið núna hefði vínið gott af umhellingu. Giska á að það eigi 10 góð ár framundan.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2010 Delas Frères Hermitage Domaine des Tourettes 91 Points

    France, Rhône, Northern Rhône, Hermitage

    Langdekksta vínið fram að þessu. Hiti í ilmi. Bazooka tyggjó og sæt ber líka. Eftir smá stund þá bættust við krydd, útihús og/eða sveit. Mun einfaldara en Priorat vínin sem fóru á undan. Í munni dökkir ávextir, krydd (timjan) og lakkrís svo í lokin. Botnfall í flöskunni. Það er nú svo að í hverju smakki þá verður eitthvað vín að vera lakasta vínið. Delas tók það að sér í þetta skiptið. Það þýðir þó alls ekki að það hafi verið vont. Þvert á móti. Það var bara fullt af mjög góðum vínum sem við smökkkuðum að þessu sinni.

    Post a Comment / 2 people found this helpful, do you? Yes - No

  • 2010 Il Poggione (Proprietá Franceschi) Brunello di Montalcino 93 Points

    Italy, Tuscany, Montalcino, Brunello di Montalcino

    Meðaldökkur litur. Þungur, höfugur ilmur. Sæta og karamella í nefinu. Líka bláber. Virkilega þægilegt í munni. Tannín orðin mjúk. Annars dökkir ávextir og kirsuber. Ristaðir tónar í lokin. Sýran mjög viðkunnanleg. Væri örugglega flott með mat. Næstum þrjú ár síðan ég smakkaði þetta vín síðast. Tannínin orðin miklu mýkri en þá. Hefði samt líklega gott af umhellingu.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2015 Bodegas Escorihuela Gascón Malbec "DON" 94 Points

    Argentina, Mendoza

    Svarblátt á litinn. Ekki mikill ilmur til að byrja með en þægilegur. Eftir smá stund birtust sæta og kandís í nefinu. Þegar bragðað á víninu þá mátti finna meðal annars plómur, krækiber. í lokin komu svo dökkir ristaðir tónar. Flott jafnvægi. Tannín og sýra alveg passleg. Vín með nauti engin spurning. Líklega besta malbec sem ég hef smakkað. Sjaldgæft vín, ekki nema 4.800 flöskur framleiddar. Glerið í flöskunni var svo níðþungt. Vigtaði það til gamans og það reyndist 978 g! Til samanburðar var Delas glerið sem smakkað var áður um 400 g léttara.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Þetta var alveg geggjað smakk. Öll vínin góð. Delas, sem við vorum öll sammála um að væri sísta vínið er nú alveg ágætt. Fyrir mig þá var pinotinn flottastur. Skammt á eftir komu Don og Clos Mogador. Þrjú frábær vín sem öll eru mjög ólík. Erfitt að gera upp á milli þeirra.

×
×