Jólavínsmakk Eðalklúbbsins 2019

Marbakkabraut 12
Tasted Friday, December 13, 2019 by bitdrerik with 217 views

Introduction

Árlegt jólavínsmakk Eðalklúbbsins var haldið 13. desember. Allir fastafélagar voru mættir. Á dagskrá var dýrindis matur sem Bolli hafði útvegað frá S-Frakklandi. Til stóð að yrði úrval af sætvínum með matnum, smökkuð væru síðan þrjú vín frá Alvaro Palacios. Þar fyrir utan var Björgvin með ýmislegt í pokahorninu.

Flight 1 - Til upphitunar. (2 Notes)

  • 2017 Solà d'Ares Catalunya Sauri 86 Points

    Spain, Catalunya

    Jólavín og matarklúbbur. Þessi var opnuð fyrst. Engar sérstakar nótur teknar fyrr en lengra leið á kvöldið. Þetta er gott vín, sérstaklega þegar það er haft í huga að það kostar minna en 12€. Það borgar sig hins vegar ekki að geyma það lengi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 Solà d'Ares Priorat Bessons 89 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Annað vínið, sem var drukkið á meðan var verið að græja matinn var þetta. Kom virkilega á óvart. Mjög gott. Dökkir tónar ráðandi bæði í ilmi og munni. Kostar líka tvöfalt á við Saurí flöskuna sem var drukkin á undan.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - Sætvín og CdP með matnum. (4 Notes)

  • 2005 Domaine de la Fontainerie Vouvray Coteau les Brûlés Moelleux 92 Points

    France, Loire Valley, Touraine, Vouvray

    Eitt af þremur vínum sem voru drukkin með fois gras, bæði anda og gæsa ásamt ostum og nokkrum paté gerðum. Frábært vín. Fyrir mig best með matnum af þessum þremur. Þetta er í fyrsta skipti sem ég smakka Vouvray en ekki það síðasta. Ég held að það sé alveg ljóst.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2014 Château Guiraud Petit Guiraud 89 Points

    France, Bordeaux, Sauternais, Sauternes

    Þetta var líka drukkið með matnum. Léttara og ekki eins fágað eins og Vouvray vínið. Virkilega gott samt.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 István Szepsy Tokaji Szamorodni Édes 93 Points

    Hungary, Tokaji

    Þriðja og síðasta sætvínið sem var í boði með matnum. Ekki eins góður með matnum eins og Vouvray vínið en mér fannst þetta best eitt og sér. Löðrandi í apríkósum. Passleg sæta. Mjög kraftmikið. Mjög gott vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2012 Domaine Lucien Barrot et Fils Châteauneuf-du-Pape 89 Points

    France, Rhône, Southern Rhône, Châteauneuf-du-Pape

    Með matnum var líka þetta vín í boði fyrir utan sætvínin. Ég var nú ekkert sérstaklega hrifinn af þessu víni. Allt í lagi en ekkert mikið meira en það. Það var eitthvað við það sem var að trufla mig.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Palacios, þrjú vín (3 Notes)

  • 2016 Alvaro Palacios Priorat Les Terrasses Laderas de Pizarra 88 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Meðaldökkt á litinn. Hafði fengið að standa u.þ.b. hálftíma á karöflu. Frekar lokað í ilmi. En það sem fannst var samt mjög dökkt. Kreósót, húð og kyn. Síðan mátti greina tyggjó, myntu og fjólur. Sömuleiðis mjög dökkir tónar á tungunni. Einnig mjög mikil sýra. Mikil tannín. Eftir nokkra stund í glasi birtust svo krækiber og önnur dökk ber. Líka bruna eða sótbragð. Líklega vorum við að drekka þetta vín of ungt. Ég er samt ekki viss um að það muni nokkurn tímann verða gott. Ekki neitt sérstök frammistaða af 30€ víni finnst mér. Ég held að allir sem smökkuðu hafi verið sammála um það. Ég væri samt til í að smakka þetta vín frá betri árgangi til að fá samanburð.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2015 Alvaro Palacios Priorat Finca Dofí 91 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Frekar ljóst á litinn. Lokað í nefi til að byrja með. Síðan fóru að koma í ljós tónar eins og rifsber, mynta, steinefni og lanólín. Svipaður ilmprófíll og af Terrasses víninu á undan. Samt fágaðri. Flott fylling á tungunni. Mikill ávöxtur. Kryddtónar líka á sínum stað. Í lokin gera svo brunatónar vart við sig. Ég held að við höfum flestir eða allir verið sammála um að þetta vín sé allt of dýrt miðað við það sem það skilar. Gott vín en að borga u.þ.b. 80€ fyrir svona flösku er bara allt of mikið. Það er samt mjög áhugavert að hafa smakkað þetta vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2006 Alvaro Palacios Priorat L'Ermita 96 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Vínklúbburinn ákvað í vor að leggja í púkk og fjárfesta í einni l'Ermita flösku. Nú var svo komið að því að smakka á henni. Loftað í karöflu í líklega sex klukkutíma. Smá brúnka farin að koma í jaðra. En annars ferskur litur. í nefi sveskjur, lím í byrjun. Síðan birtust mjög dökkir ávextir. Einnig lanólín. Svo eftir þyrlun mátti finna blóm, kaffi og súkkulaði. Þegar bragðað var á víninu þá var talað um dökka ávexti , karamellu, kaffi, súkkulaði. Einnig jólatré eða harpix. Vínið er með mjög flotta sýru og góð tannín. Vínið er gríðarlega ferskt og silkimjúkt. Menn voru mjög ánægðir með vínið held ég bara allir. Smakkarar voru líka á því að þótt vínið væri frábært þá væri það engan veginn að standa undir verðmiðanum (u.þ.b. 450€). En gaman að hafa smakkað svona risa.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 4 - Landaleikur (bara þessi hluti var blindsmakkaður). (5 Notes)

  • 2016 Thelema Cabernet Sauvignon 90 Points

    South Africa, Coastal Region, Stellenbosch

    Síðasti hlutinn gekk út á það að við vorum með fimm vín sem gátu verið frá 8 mismunandi stöðum. Staðirnir voru: Frakkland, Ítalía, Spánn, N-Ameríka, S-Ameríka, Eyjaálfa, Afríka og Asía (ásamt öðru). Teknar voru tvær umferðir. Í fyrri umferðinni átti helst að einangra staðina og í þeirri síðari helst að raða vínunum rétt niður.

    Þetta vín til dæmis olli okkur miklum höfuðverk. Það vantaði öll einkenni sem við flestir höfum tengt við S-Afríku. Svo sem sandbragð ásamt brenndum tónum. Alveg mjög frambærilegt vín. Líka ódýrast af þeim sem við smökkuðum í þessari síðustu smakklotu.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2016 Craggy Range Sophia 93 Points

    New Zealand, North Island, Hawke's Bay, Gimblett Gravels

    Eftir fyrri umferðina fengum við að vita að vínin sem við værum að smakka væru frá: Ítalíu, Spáni, Eyjaálfu, Afríku og N-Ameríku. Fyrir einhverja slembilukku þá hafði ég sett öll svæðin rétt og var meira að segja með tvö vín á réttu svæði.

    Okkur gekk líka bölvanlega að staðsetja þetta vín, enda ekkert sérstaklega dæmigert sem slíkt fyrir Ástralíu. Reyndar var þetta vín að mínu mati annað af tveimur bestu vínunum í þessum hluta smakksins. Virkilega gott vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 Heitz Cellar Cabernet Sauvignon 89 Points

    USA, California, Napa Valley

    Í seinni hlutanum þá gekk okkur enn bölvanlega að staðsetja vínin. Ég náði meira að segja að færa spænska vínið af réttum stað yfir á rangan og var því með eitt vín rétt staðsett í lokin.

    Það var alveg rætt um að þetta vín gæti verið frá N-Ameríku en ég held að flestir hafi endað annars staðar með það. Ég gerði það að minnsta kosti. Mér finnst þetta bara ekki nógu gott vín. Held að þetta sé í þriðja skipti sem ég smakka það og alltaf eru hálfgerð vonbrigði með það. Sérstaklega kannski af því að það kostar rétt tæplega 8.000 kr.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2016 Clos I Terrasses Priorat Laurel 91 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Ég náði ekki að vera með þetta rétt í lokin. Var með það á Spáni í fyrri umferðinni en færði það annað í lokin. Til Eyjaálfu minnir mig.

    Ágætis frammistaða. Vín sem er með svolítið dökka tóna, sveskjur til dæmis og mjög dökka ávexti. Það kom mér til að halda að það væri frá heitara svæði. Fínt vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2011 Tommasi Amarone della Valpolicella Classico Riserva Ca' Florian 94 Points

    Italy, Veneto, Valpolicella, Amarone della Valpolicella Classico

    Eina vínið sem ég náði að staðsetja rétt að lokum var þetta. Ekkert endilega einkennandi fyrir Ítalíu eða Amarone ef út í það er farið.

    Fyrir mig þá var þetta besta vínið úr síðasta hlutanum. Virkilega gott Amarone. Ekki eins sætt og þungt eins og þau eru mörg. Með mikinn ferskleika og flott jafnvægi. Kostar líka 9.000 kall þannig að það má vera gott.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Frábært jólasmakk. Sætvínin voru flott með matnum. Palacios vínin komu misvel út en gaman að hafa smakkað þessa línu. Auðvitað stendur l'Ermita algerlega upp úr þar. Og að lokum þá var landaleikurinn stórskemmtilegur þótt ekki hafi gengið neitt sérstaklega vel að púsla vínum og svæðum saman.

×
×