Út um allt eiginlega.
Tasted Friday, November 27, 2020 by bitdrerik with 198 views
Framkvæmt eins og fyrsta Zoom smakkið.
Smakkarar að þessu sinni voru allir Eðalklúbbsfélagar
Aðalþemað var að kynnast garnacha þrúgunni aðeins betur. Við fengum í síðustu sendingu frá Spáni pakka með sex hreinum garnacha vínum. Þar fyrir utan voru þrjú önnur vín til að fylla upp smakkið. Eins og gefur að skilja var þetta blint smakk fyrir aðra en þá sem komu að skipulagningu.
Fyrirfram var búið að draga mjög mikið úr væntingum með því að kalla þetta vonda smakkið og öðrum ónefnum. Smakkið var hins vegar mjög áhugavert. Meðal annars fyrir þær sakir að við vorum að smakka vín frá að minnsta kosti þremur vínhéruðum sem ég hafði ekki heyrt minnst á áður. Það var mjög jöfn keppni um besta vínið. Fyrir mína parta sköruðu Victorino og Terrerazo fram úr öðrum vínum og mér fannst seinna vínið ná að negla þetta með naumindum. Bestu kaupin var hins vegar engin spurning um. Flor de Goda landaði því auðveldlega. Virkilega flott vín sem kostar 7,4€. Vonda smakkið endaði á að vera ekki svo vont.
2017 El Escoces Volante Calatayud La Multa 83 Points
Spain, Aragón, Calatayud
Frekar dökkur litur. Engin öldrunareinkenni. Fjós, svitalykt, hestur, strokleður, grænol uppþvottaefni. Kryddjurtir, tjara. Soðin sulta. Krakus jarðarber. Bensín. Líklega heitur staður.
Jarðarberjasulta á tungu. Mikil sýra. Mikil eik, vanilla. Paprika, græn. Mosagróður. Mjög líklega fékk eitthvað af berjunum hafi fengið að hanga lengi. Mikil sultueinkenni. Ekkert rosalega spennandi fyrir mig. Sammála Jóni Lofti. Vantar karakter. Örugglega fínt matarvín samt. Mjög ódýrt eða á 6,25€.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2017 Bodegas Morca Garnacha Flor de Goda 87 Points
Spain, Aragón, Campo de Borja
Frekar dökkt á litinn. Jafnvel öldrunareinkenni. Vá hér kemur spritt, fjós. Ananas, karamella hindber/sólber. Þroskaður banani. Þegar þyrlað þá dettur lyktin niður. Bökunartónar, kryddtónar, vanilla, kardimomma. Olía.
Síðan á tungu. Plóma, mjög lítil sýra. Talsverð sæta. Líklega hangið lengi. Kirsuber, mjög mikil kirsuber. Mjög þægilegt vín. Vottur af sérríi eða púrtvíni. Kaffi, súkkulaði í eftirbragði. Mjög þægilegt vín.
Kom svo í ljós að þetta vín kostar rúmar 7€. Virkilega góð kaup í því.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2018 Cellers de Scala Dei Priorat Garnatxa 85 Points
Spain, Catalunya, Priorat
Frekar ljós litur eða jafnvel mjög ljóst. Mjög mikil lykt af brjóstsykri. Sápulykt og ilmvatnslykt. Sundlaugasápa. Eplasjampó. Granny Smith. Kemur svo ekkert frekar fram við þyrlun. Hitaveitulykt.
Svakalega mikil sýra. Rabarbari. Örugglega stuttur tími á hýði í gerjun. Ekkert mikið bragð. Vantar karakter. Fínlegt bragð. Létt. Vel gert vín. Pinot stíll. Stemma í lokin.
Þetta vín var nú ekkert að kveikja neitt rosalega í mönnum. Það verður nú að segjast eins og er. Verðið á víninu er 11,3€.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2017 Daniel Gomez Jimenez Landi Méntrida Las Uvas de la Ira Vina de Pueblo 88 Points
Spain, Castilla-La Mancha, Méntrida
Mjög ljóst. Lyktar eins og hvítvín. Melónur, suðrænir ávextir. Tyggjó. Tutti frutti. Juicy fruit.
Á tungu. Mjög mikið krydd. Massíft bragð. Kryddvöndull og sýra. Kælt úti á palli held ég að þetta væri geggjað. Lárviðarlauf. Mikil sýra. Passar með paté? Gervilegt? Betra í shiraz glasi. Tóbak í eftirbragði. Kryddtónarnir breytast líka þegar vínið hefur staðið nokkra stund í glasi. Létt eikað. Virkilega gott og skemmtilegt vín. Verðmiði upp á 19,5€ skemmir samt aðeins fyrir.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2016 Teso La Monja Toro Victorino 92 Points
Spain, Castilla y León, Toro
Frekar dökkt á litinn. Hérna eru mikil sveitaeinkenni. Lyng og runnar. Bláberjasulta. Virkilega flott lykt. Þung og höfug. Olía og bílskúrsglefsur komu síðan í lokin.
Bragðast svo mjög vel. Súkkulaði, kakó. Þykkt. Mjög dökkir ávextir. Massíft, virkilega gott vín.
Einhver, kannski Indriði, stakk upp á Porrera.
Kom svo í ljós þegar vínið var afhjúpað að Björgvin og Magnús voru að spila með okkur. Toro vín og alls ekki garnacha heldur tempranillo.
Virkilega gott vín en ekki ódýrt. Kostar 38€ nýjasti árgangurinn.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2015 Celler Dosterras Montsant 87 Points
Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant
Frekar dökkur litur. Kattarhland, bruni. Mjög fáguð og góð lykt. Mikið eikað. Sedrus. Brún sæta, púðursykur. Grænir tónar á bakvið. Kúadellur. Ammoníak. Harpix. Rosalega mikil sveit. Kjöt, blóð.
Í munni. Þroskað. Oxað. Mjög sýrurríkt. Fellur svo. Dökkir ávextir. Ágætis jafnvægi. Rúsínur, tóbak. Soðið bragð. Minnir að sumu leyti aðeins á Amarone.
Flottur ilmur en vonbrigði í bragði. Nánast ekki neitt. Mjög þroskað garnatxa. Þarft að vera fljótur að drekka því það hallar ansi hratt undan fæti.
Lúðvík negldi þetta. Montsant. Kostar 21,5€ sem er ansi mikið. Allt of mikið fyrir minn smekk.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2018 Ficaria Vins Montsant Pater 86 Points
Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant
Síðasta vínið í garnacha smakkpakkanum frá Winfred.
Millidökkur litur. Skítalykt af þessu víni. Hreinsiefni. Tiltölulega stutt síðan þetta vín var smakkað í klúbbnum (reyndar var ég ekki í því smakki). Vanilla. Lím í lykt. Kirsuber maraschino. Lofnarblóm.
Á tungu: Mjög sýruríkt. Jarðarber, paprika, grænir tónar. Heilir þrúguklasar. Alveg þokkalegt vín. Náði samt ekki alveg Dosterras sem fór á undan. Er samt talsvert dýrara, kostar 25,2€. Ég skil ekkert. Dytti aldrei í hug að kaupa þetta vín á þessum prís.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No