Zoom smakk Eðalklúbbs #3

Út um allan bæ
Tasted Friday, December 11, 2020 by bitdrerik with 226 views

Introduction

Þá var komið að jólasmakki Eðalklúbbsins. Í ljósi aðstæðna fór það fram með svipuðu sniði og síðustu 2 smökk klúbbsins. Allir klúbbfélagar tóku þátt í smakkinu að þessu sinni. Magnús var yfirskenkjari og sá um að fylla á flöskurnar ásamt því að sjá um að koma okkur á sporið þegar við fórum að villast af leið, hann vissi jú hvaða vín voru hvað.

Flight 1 - Byrjuðum á tveimur hvítum. (2 Notes)

  • 2018 Bodegas Rafael Palacios Val do Bibei As Sortes 93 Points

    Spain, Galicia, Val do Bibei

    Frekar ljóst á litinn. Mikill ilmur, sítrus, sæta suðrænir ávextir, apríkósur og græn epli. Nýheflað timbur. Þykk lykt sem minnir á smjör. Hálmur og perubrjóstsykur heyrðust líka. Mjög mikið að gerast í ilminum. Á tungunni: Sítrus og krydd til að byrja með. Góð bygging og gott jafnvægi. Þarna má líka finna eik og steinefni. Feitt í munni. Kröftugt vín. Einnar þrúgu vín. Virkilega flott vín gæti örugglega geymst í nokkur ár en er þegar orðið flott.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2016 Celler Cal Pla Priorat Mas d'en Compte Blanc 91 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Gylltari tónar í þessu víni en fyrra hvítvíninu. Appelsínugulir tónar. Þungur, höfugur ilmur. Ólífuolía í nefi. Nýslegin taða. Lyng, heiðagróður. Salvía. Niðursoðið lychee, apríkósumauk, mjög þroskaður suðrænn ávöxtur. Díselolía. Á tungunni: Sítrus, appelsínubörkur, Talsverð sýra. Talsverð þykkt. Suðræn flóra. Steinefni. Áhugavert vín. Ekki einnar þrúgu vín heldur blanda af þremur þrúgum. Stóð í karöflu allan daginn fyrrir smakkið!
    Gott en vantar karakter í bragð. Alveg áreiðanlega hægt að geyma þetta vín í nokkur ár.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - Svo komu nokkur rauð. (6 Notes)

  • 2017 Celler Cal Pla Priorat Obac de l'Andreva

    Spain, Catalunya, Priorat

    Tæplega meðaldökkt. Unglegur litur, yngra en fimm ára. Undarleg lykt í byrjun. Grænjaxlar, óþroskuð krækiber. Leysiefni, þynnir. Þroskaður banani. Gæti verið að það séu smá kirsuber eftir að glasinu var þyrlað. Síðan komu fram dekkri tónar. Döðlur, og dökkur ávaxtamassi. Mikið eikað, ný eik. Á tungunni. Talsverð sýra. Allt of ungt. Mjög mikil gæði en er ekki alveg komið í jafnvægi. Smjattvín. Smá sæta. Mjög áhugavert vín. Franskur blær yfir þessu. Ekki einkunn að þessu sinni. Of ungt. Væri líklega á bilinu 90-93. Verður spennandi að vita hvernig þetta vín þróast með hækkandi aldri.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2018 En Numeros Vermells Priorat Garnatxa Peluda

    Spain, Catalunya, Priorat

    Frekar ljóst á litinn. Unglegt, mjög fjólublátt. Kunnugleg lykt. Krydd í ilmi. Leysiefni líka. Leður. Rósir, blómailmur. Potpourri. Sæta og dökk kirsuber ásamt jarðarberjum Þegar vínið var smakkað þá kom fram: Mjög mikill ferskleiki, mjög mikil sýra. Mynta. Flott jafnvægi. Vantar pínu karakter. Af þessu víni var gerð ein tunna. Flaskan var nr. 94 af 267. Eins og með Andreva vínð þá er ég að hugsa um að sleppa einkunn. Of óþroskað. Væri líklega á bilinu 89-92.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 Celler Marc Ripoll Sans Priorat Cal Batllet 5 Partides 92 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Talsvert dekkra en vínið frá Silvíu. Viður, sæta í ilmi. Kjallari. Flottur og mikill ilmur. Eins og að detta inn í antikbúð, blóð. Gömul húsgögn. Svört ber, brómber. Súkkulaði. Þungur og höfugur ilmur. Jörð, sveppir. Tóbak. Svo eik, mjög nett. Leysiefni. Basset‘s Liquorice Allsorts, lakkrískonfekt, anís. Flottasti ilmurinn í kvöld, fram að þessu. Á tungunni: Lakkrís. Talsverð tannín. Mjög mikil eik. Svo kemur sæta fram. Ristaðir tónar. Appelsína í eftirbragði. Kemur ekki vel út í pinot glasi. Kemur betur út í byrjun heldur en eftir stund í glasi. Bragðið verður útþynnt eftir smá tíma í glasi. Einhver stakk upp á þetta væri til valið vín fyrir Coravin græjuna. Ekki besta frammistaða sem ég hef fundið hjá þessu víni. Því var velt upp hvort að árgangurinn væri kannski ekki góður. Engu að síður þá er þetta klassavín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2016 Château Clinet

    France, Bordeaux, Libournais, Pomerol

    Frekar dökkt á litinn. Dökkur kjarni. Líklega dekksta vínið fram að þessu. Ný eik, þung lykt. Frekar lokað. Bílaverkstæði og hjólbarðaverkstæði. Mjög feiminn ilmur. Harpix. Svartur pipar? Þegar var bragðað á víninu: Mjög þykkt. Mjög mikil tannín. Mikil krydd. Mjög sýruríkt. Talsverð brunaeinkenni. Ekki tilbúið fyrir 5 aura. Vantar ávöxt, samt mátti greina krækiber. Það verður nú að segjast eins og er að við vorum nú ansi langt frá þessu. Drekkum greinilega ekki nógu mikið af Bordeaux. Vínið er langt frá því að vera tilbúið. 2025 hljómar sennilega að það mætti fara að skoða þetta vín. Sleppi einkunn að þessu sinni, væri ca. 89-91 myndi ég halda á þessari stundu.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 Celler Joan Simó Priorat Les Eres Especial Dels Carners 95 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Meðaldökkt og frekar ungt. Fjós og klósett sem kemur á móti manni í byrjun. Rýkur svo hratt burt. Smurolía. Frekar nettur ilmur. Annars frekar feimið. Pappakassi, viður. Sæta? Kandís? Kaffi. Smökkum á þessu til að tékka. Vel brenndar tunnur sem þetta hefur verið sett á. Mikill ferskleiki. Brenndir tónar. Þétt fersk sýra. Steinefni, gifs og allur pakkinn. Sólber og kattarhland. Vanilla. Oxun í bragði (Bolli). Hreint út sagt frábært vín. Kostar reyndar 67€ þannig að sopinn er ekki gefinn en ég held svei mér þá að vínið standi undir verðmiðanum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2014 Celler Francisco Castillo Priorat Selección Ingrid Clos Dominic 95 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Ljóst á litinn. Gæti verið 5 ára gamalt. Lím og leysiefni, UHU. Viskítunna. Bourbon. Skósverta, bruni. Ranci tónar. Karamella. Brenndur sykur. Sé smakkað þá finnst mikill ferskleiki. Ungt. Hellingur eftir. Þéttur ávöxtur. Talsverð sýra. Mikil steinefni. Flottur tannínprófíll. Stórgott vín. Vantar karakter, finnst Bolla en Lúðvík og Björgvin á annarri skoðun. Dýrt, kostar yfir 60€ en frábært! 100% Garnatxa. Mér fannst þetta vín vera alveg í sama klassa og Carneros vínið á undan. Á mjög erfitt með að gera upp á milli þeirra.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Klykkt út með einu sætu. (1 Note)

  • 1986 Mas Pujol Rivesaltes Hors d'Âge

    France, Languedoc Roussillon, Roussillon, Rivesaltes

    Mjög ljóst. Sæta, rúsínur. Mjög fínt. Skrifaði engar þannig nótur með þessu víni. Skemmtilegt að smakka þetta samt.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Virkilega gott og skemmtilegt smakk. Vínin hverju öðru betra. Fyrir minn smekk þá stóðu Carneros vínið og Selecció Ingrid upp úr. Ég held að það sé alveg við hæfi að kalla þetta einnar tunnu smakkið því fjögur af vínunum sem voru smökkuð voru gerð í u.þ.b. 300 flösku magni eða úr einni tunnu.

×
×