Eðalklúbbur, sumarsmakk 2021

Hlíðarás 10
Tasted Thursday, July 22, 2021 by bitdrerik with 219 views

Introduction

Það náðist að smala saman í vínsmakk rétt áður en fjórða COVID bylgja skall á af fullum krafti. Það voru fjögur þemu sem voru tekin fyrir í smakkinu, sem var óvenju stórt að þessu sinni. Allir félagar, nema Andri gátu tekið þátt og svo var Hafliði Loftson gestur í smakkinu.

Flight 1 - Nýja Riedel kampavínsglasalínan prófuð. (3 Notes)

  • 2017 Perelada Cava Stars Brut Nature 88 Points

    Spain, Cava

    Samanburður á freyðivínum í ýmsum glösum. Aðallega þó í gömlu og nýju Riedel kampavínsglösunum en einnig í Old Syrah eða Pinot Noir frá Riedel.
    Mjög flottur litur, kopargylltur. Útiþurrkaður þvottur, rósir, appelsínubörkur og kjöt í nefi. Bitrir tónar, appelsínubörkur, sítrus, ananas og pina colada á tungu.
    Kom í ljós að þetta freyðivín kom einna best út í gömlu Riedel glösunum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2006 Recaredo Cava Turo d'en Mota 91 Points

    Spain, Cava

    Strágult á litinn. Eftirfarandi kom fram í ilmi: Ger, brauð (normalbrauð), marsípan, mjólkursýra, ostur, brauðkassi. Þegar var smakkað á víninu þá komu fram: Oxunartónar, líka osta/mjólkursýrubragð. Síðan eftir smá stund í glasi þá fundust líka rúsínur og greipaldin ásamt steinefnum. Talsverð sýra. Mikið vín og fyrir minn smekk yfirdrifið. Áhugavert samt að hafa smakkað það. Þetta vín kom áberandi best út í nýju Riedel kampavínsglösunum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • NV Jacquesson & Fils Champagne Cuvée No. 743 Extra-Brut 92 Points

    France, Champagne

    Strágult. Í nefinu: Hindber, jarðarber, ger brauð og núggat. Nýslegið engi og blómailmur kom svo fram eftir smá stund í glasi. Þægilegur ilmur og ekki eins ágengur og hjá Tura víninu sem var smakkað næst á undan. Hunang á tungu ásamt sítrus, vanillu, kryddi, salti og viskíi!
    Þetta vín kom líka áberandi best út í nýju Riedel kampavínsglösunum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - Hraðsmakk. Áhersla á Carinyena þrúguna. (6 Notes)

  • 2019 Jeff Carrel Languedoc Les Darons 85 Points

    France, Languedoc Roussillon, Languedoc

    Þá var komið að hraðsmakki með áherslu á carinyena/samsó/carignan þrúguna. Við byrjuðum þó á þessu víni sem samkvæmt einhverjum heimildum átti að vera með carignan í meirihluta en reyndist svo vera með grenache sem aðalþrúgu.
    Meðaldökkt. Ódýr lykt sem samanstóð af sætum kirsuberjum, sultu, beikoni og tóbaki. Á tungunni mátti svo finna reykta skinku, tóbak, græna papriku. Kaffi og apótekaralakkrís kom svo fram í eftirbragði.
    Allt í lagi vín en fyrir minn smekk helst til dýrt fyrir 3.000 kr.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2015 Solà d'Ares Catalunya Saurí Vinyes Velles Flawed

    Spain, Catalunya

    Meðaldökkt. Ellilegur litur. Mjög skrítin lykt, edik (rafgeymasýra sagði Bolli), lakkrís, þynnir (sellulósa) og gráðostur. Frekar óspennandi á bragðið, súrkál aðallega. Skiptar skoðanir á því hvort væri í lagi með þetta vín eða ekki. Líklega skemmd þó.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2017 Cellar Cedo Anguera Montsant Clònic 86 Points

    Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant

    Meðaldökkt. Þegar fyrst er þefað af víninu þá kemur fram poppkorn með smjöri! Síðan kremuð eik, svört kirsuber, sveskjur og kaffi. Eftir smá stund svo greni eða harpix tónar. Þægilegur ilmur. Á tungunni koma svo fram kirsuber, brómber. Mikill ferskleiki, mjúkt og þægilegt. Steinefni, jafnvel járn gerðu einnig vart við sig.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2017 Celler Josep Vicens Terra Alta Mon Iaio Sisco 88 Points

    Spain, Catalunya, Tarragona, Terra Alta

    Mjög dökkt á litinn. Rjómakaramella, maltkaramella, mikið lím (UHU), ber, eik í nefi. Á tungu: Mikið vín, bolti. Talsverður bruni. Sólber.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2017 Alfredo Arribas Montsant Trossos Vells 89 Points

    Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant

    Meðaldökkur litur. Kattarhland, sólber, mynta, járn, blóð og steinefni í ilmi. Priorat einkenni í ilminum, sem er mjög ferskur. Nett eik á tungu. Einnig kaffi og súkkulaði. Ferskleiki og gott jafnvægi. Mjög aðlaðandi vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2016 Celler Dosterras Montsant Finca Aiguasals 89 Points

    Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant

    Frekar ljóst. Heit þægileg lykt af víninu. Ekki mikil. Frekar lokað. Eftir smá stund kemur blómailmur, fjólur eða líklega frekar lofnarblóm. Einnig plómur og anís. Í munni talsverð sýra og tannín. Ekki áberandi eik. Skógur, skógarbotn, vanilla og rauð ber.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Tvö Perelada vín af sömu ekrum. Hvað er sameiginlegt? (2 Notes)

  • 2016 Perelada Empordà 5 Fincas Reserva 89 Points

    Spain, Catalunya, Empordà

    Nú var skipt um gír í vínsmakkinu. Eftir hraðsmakk á sex vínum var nú farið í skoða þrjár tvennur af vínum. Fyrsta tvennan var Perelada 5 Fincas og Perelada Gran Claustro sem koma af sömu vínekrunum.
    Meðaldökkt. Mjög þægilegur ilmur. Nýja heims ilmur. Karamella, vanilla, grænt wrigleys tyggigúmmi (piparmynta), kryddtónar og pipar. Mjög mjúkt og þægilegt á tungu. Skær ávöxtur ásamt myntu.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2012 Perelada Empordà Gran Claustro 92 Points

    Spain, Catalunya, Empordà

    Mjög dökkt á litinn. Sveit í ilmi, minnir á Bordeaux. Hellingur af leysiefnum, útihús, fjólur og sólber. Þegar var smakkað á víninu þá komu fram einiber, leður, græn paprika, ekvalyptus og eik jafnvel svolítið brennd. Okkur fannst meira sameiginlegt með þessum vínum í bragði heldur en í ilmi að minnsta kosti í byrjun. Eftir því sem á leið þá fór ilmurinn að líkjast meir og meir. Var með Gran Claustro í Cabernet glasi en 5 Fincas í Old Syrah glasi. Þegar ég setti Gran Claustro í Old Syrah glas þá voru vínin enn líkari. Gran Claustro þó eikaðra dekkra og fágaðra. Held líka að Gran Claustro eigi að geta geymst lengur en 5 Fincas.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 4 - Nýtt og gamalt Torres Gran Coronas vín. (2 Notes)

  • 2016 Torres Cabernet Sauvignon Penedès Gran Coronas Reserva 84 Points

    Spain, Catalunya, Penedès

    Næsta tvenna var með tveimur árgöngum af Torres Gran Coronas.
    Meðaldökkt. Mjög hvöss lykt. Græn paprika. Alveg einstaklega grænir tónar í ilmi. Síðan komu fram sólber, ribena safi, beikon og rjómi. Í munni mátti líka finna græna tóna en líka tyggjó, fitu og reyk. Ekkert sérstaklega skemmtilegt vín. Sérstaklega þegar tekið er mið af því að flaskan kostar 3.000 kr.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 1987 Torres Cabernet Sauvignon Penedès Gran Coronas Reserva 87 Points

    Spain, Catalunya, Penedès

    Mjög aldraður litur. Appelsínugul rönd sem maður sér nú ekki oft. Ilmurinn sýndi líka ellimerki. Skítalykt, rúsínur og sveskjur. Á tungu mjög soðið, búrgúndartónar, vatnsmelóna, blautt og sætt píputóbak. Vínið var nú kannski ekkert sérstaklega spennandi í byrjun og auðvitað búið að toppa fyrir lifandis löngu. En það batnaði í glasi og undir lokin þá var það nú orðið dágott. Það sköpuðust miklar umræður um gæðastandardinn á þessum vínum. Held að flestir hafi verið sammála um að hann hefði dalað mikið. Við sáum ekki að nýrra vínið myndi sýna sig svona vel 34 ára gamalt eins og eldra vínið.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 5 - Ný og gömul Valbuena. (2 Notes)

  • 2015 Bodegas Vega-Sicilia Ribera del Duero Valbuena 5° 95 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Í þriðju og síðustu tvennunni voru bornir saman tveir árgangar af Valbuena. Nýjasti árgangurinn og svo rúmlega 30 ára gamalt vín.
    Frekar dökkt eða jafnvel mjög dökkur litur. Í nefi: Smá fjós, mikill og þykkur ávöxtur, leður, lakkfrís og harpix. Mjög þéttur og flottur ilmur. Svo þegar var smakkað á víninu! Þvílíkt flauel og jafnvægi. Mjög flottur og þroskaður ávöxtur. Fannst fyrir smá eik. Virkilega flott vín. Alveg klassa ofar öðrum fram að þessu í smakkinu. Þetta er sjöundi árgangurinn sem ég smakka af Valbuena (reyndar áttundi ef árgangurinn sem kom á eftir þessum er talinn með) og líklega sá besti fram að þessu. 2010 gæti samt hafa verið svipað góður.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 1989 Bodegas Vega-Sicilia Ribera del Duero Valbuena 5° 92 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Múrsteinslitað. Mjög fínn og þroskaður ilmur. Blóð og kjöt. Kokteilsósa, bílaverkstæði, ryk, járn. Frekar mikil sýra þegar smakkað á víninu. Þéttur bragðvöndull sem erfitt er að greina í sundur. En mjög flott miðað við aldur. Stendur vel fyrir sínu. Væntanlega komið vel yfir toppinn en ekkert farið að dala neitt mikið. Miðað við þetta smakk þá er líklega ekki sniðugt að geyma Valbuenurnar sínar mikið meira en 15-18 ár ef maður vill ná því besta út úr þeim.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 6 - Blindsmakk. Gefið var að eitt vínið væri hreint carinyena. (5 Notes)

  • 2011 Perelada Empordà Finca La Garriga 91 Points

    Spain, Catalunya, Empordà

    Nú var enn skipt um gír í vínsmakkinu. Fram að þessu hafði ekkert verið smakkað blint. Nú var komið að því að taka nokkur vín í blindsmakki.
    Dökkur litur, sem var farinn að sýna smá ellimerki. Komið brúnt í jaðra á víninu. Fjós, sveit, epli, ferskjur, ferskt ávaxtasalat, brennd eik og kindakæfa í nefinu. Mjög þétt bragð. Ávaxtasalat, kjöt, appelsína, límóna í munni. Sýrumikið, ekki mikil eik. Gæti verið of ungt? Það kom svo í ljósr þegar hulunni var svipt af víninu að þetta var 100% samsó (sem er sama þrúga og carinyena). Það var enginn okkar sem kveikti á því þótt við hefðum verið með carinyena hraðsmakk fyrr um kvöldið. Okkur til varnar þá virtist bara ekki vera mikill samnefnari á þessum vínum nema kannski helst tannínprófíllinn sem hefði getað beint okkur á réttar brautir. Enn og aftur: Blindsmakk getur verið grimmt.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2009 Château Léoville Poyferré

    France, Bordeaux, Médoc, Saint-Julien

    Mjög dökkt. Unglegur litur. Lítill ilmur. Jarðarberjasulta, karamella, rúsínur, tjara (kalfattaður súðbyrðingur, Bolli kom með þessa lýsingu), jólatré, rósir og massífur ávöxtur. Í munni sæta, karamella, vanilla, rosaleg sýra, tjara, harpix og kreósót. Þegar hulunni var svipt af víninu þá komu nú vöfflur á menn. Þetta er nú einu sinni 100 stiga RP vín en það hagaði sér ekki þannig í smakkinu. Leit ekki út fyrir að vera skemmt en gæti hafa verið í einhverjum skrítnum fasa. Ég hefði gefið víninu 92-93 miðað við þessa frammistöðu. Sleppi því að setja CT einkunn.

    Post a Comment / 3 people found this helpful, do you? Yes - No

  • 2015 Château Rouget

    France, Bordeaux, Libournais, Pomerol

    Þegar hér var komið sögu þá vorum við Indriði runnir út á tíma. Þetta var búið að vera mikið smakk og vinnudagur daginn eftir. Björgvin tók við keflinu og ritaði nótur í þeim þremur vínum sem eftir voru. Ég, náttúrlega, gef ekki einkunn í þeim vínum sem fara á eftir.

    Lykt: Ljósir ávextir, B-vítamín, brauð, súrdeigsbrauð
    Bragð: Bjartir ávextir, fjós, kirsuber, jarðarber, beiskja kemur fram, mjúk tannín
    langt eftirbragð

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2012 Perelada Empordà Gran Claustro

    Spain, Catalunya, Empordà

    Það var mjög fyndið að það skyldi enda þannig að þetta vín kæmi tvisvar fyrir í smakkinu. Hefur væntanlega gerst áður hjá klúbbnum en alveg örugglega ekki oft. Vorum með þetta í einni af tvennunum og svo kom Hafliði með þetta sem blint. Björgvin ritaði:

    Litur: Dökkt, ungt, giskað á 5-7 ára
    Lykt: Rauðir ávextir, sæta, ferskt, kirsuber, rauð sulta, krydduð lykt, spítalalykt
    Bragð: Pipar, apótekaralakkrís, tannín, kirsuber

    Það kom síðan viðbótarkomment frá Björgvin á Cluster hópnum:

    Man ekki hvort farið var að kvarnast úr hópnum þegar við tókum seinni Gran Claustro - en það fann hana enginn :)

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2014 Beringer Vineyards Quantum Red Wine

    USA, California, Napa Valley

    Og svo var það síðasta flaskan. Björgvin ritaði:

    Beringer Quantum: 85% CabSau, sérvaldar ekrur hjá Beringur, late-ripe vín, aðlaðandi lykt, vín ekki tilbúið - ber og skinn áberandi og mynda húð í munni - þarf 2-5 ár, verður frábært vín, hefur fengið frábæra dóma frá víngæðingum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Niðurstöður úr smakkinu eins og þær litu út í mínum augum voru að nýju Riedel kampavínsglösin sönnuðu aftur að þau eru bara glösin sem á að nota fyrir freyði og kampavín. Gera kannski ekki gæfumun ef um er að ræða ódýrustu freyðivín en um leið og um er að ræða einhvern klassa í víninu þá skila þau skýrari og betri niðurstöððu.
Í hraðsmakkinu þar sem áherslan var á carinyena/samsó/carignan þá fundum við ekkert sérstaklega mikið sameiginlegt með vínunum sem við smökkuðum. Einna helst var það tannínprófíll sem getur hjálpað. Annars var niðurstaðan sú að þau eru mjög mismunandi og ólík.
Í tvennunum þremur þá kom nú í ljós að í fyrstu tvennunni þá svipar 5 Fincas og Gran Claustro vínunum óneitanlega saman þó Gran Claustro sé meira og flottara vín. 5 Fincas er þrátt fyrir það alveg frábært vín enda talsvert ódýrara. Í annarri tvennunni þá var það held ég samdóma álit að gæðum á Gran Coronas víninu frá Torres hefur hrakað. Þetta var alveg ágætis vín en nýjasti árgangurinn sem við smökkuðum var ekkert sérstaklega spennandi. Valbuena tvennan sem var sú síðasta var síðan alveg rosalega flott 2015 vínið var langflottast af þeim sem ég náði þó að smakka. Miðað við þessar tvær flöskur þá myndi ég segja að geymsla á Valbuena væri max. 15 til 18 ár til að vera á toppi. Eitt sem við rákum augun í í smakkinu er hvað áfengisprósenta á vínum hefur hækkað mikið á síðustu 20-30 árum á Valbueno og Torres vínunum þá munaði alveg 1,5-2 prósentum sem er gríðarlega mikið á ekki lengri tíma.
Að lokum þá sannaðist enn og aftur hvað blindsmakk getur verið grimmt. Þó náði ég ekki nema tveimur fyrstu vínunum þar. Við vorum úti á þekju með samsó vínið og við vorum lítið skárri þegar kom að Leoville Poyferré flöskunni, reyndar var hún nú hugsanlega í einhverjum skrítnum fasa þannig að okkur var nú kannski smá vorkunn þar. Svo skildist mér að menn hefðu nú ekki verið að negla Gran Claustro vínið í seinna skiptið. Að lokum: Gríðarlega skemmtilegt, fjölbreytt og áhugavert smakk.

×
×