Hlíðarás 10
Tasted Friday, November 12, 2021 by bitdrerik with 237 views
Smakkið að þessu sinni samanstóð af fjórum þáttum. Fyrst var hraðsmakk á fjórum vínum frá Montsant. Þar næst var hraðsmakk á fjórum vínum úr smiðju Raúl Pérez. Því næst komu tvö betri vín, smökkuð blint. Að lokum voru svo fjögur vín valin af einum félaga (mér í þetta skiptið), sem áttu að vera góðir fulltrúar síns vínhéraðs.
Allir fastafélagar, nema Magnús, voru viðstaddir.
Gríðarlega áhugavert smakk. Hraðsmakkið sýndi okkur nýja vídd á monastrell þrúgunni ásamt mjög sérstökum vínum frá Atlantshafströnd Spánar f. norðan Portúgölsku landamærin. Fyrir mína bragðlauka komu tvö bestu vín smakksins í kafla þrjú í smakkinu. Carraovejas alveg gríðarlega gott og svo var Rocapoll enn betra. Alveg fáránlega gott vín. í síðasta hluta smakksins stóðu félagar sig mjög vel náðu að staðsetja eitt vín alveg nákvæmlega og tvö önnur nokkurn veginn. Eina vínið sem stóð eitthvað í mönnum var Trapiche vínið. Glimrandi fín frammistaða.
2015 Cairats Montsant Seleccio 83 Points
Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant
Litur orðinn ellilegur. Ilmur, svolítið soðnir tónar Sveskjur,og beiskja. Í lokin kom samt smá ávöxtur. Svipað í munni. Dökkt og soðið bragð. Frekar óspennandi.
Þetta er samt vín sem kostar 13,9€ ekki góð frammistaða fyrir þann pening.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2015 Celler el Masroig Montsant Les Sorts Vinyes Velles 88 Points
Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant
Ljóst á litinn. Þungur ilmur. Skógarbotn, leysiefni, smá bruni og sítrus. Nefndur var hænsnakofi! Mjög ferskt þegar smakkað á víninu. Dökk ber, kirsuber. Svo kryddtónar, svartur pipar. Fínt vín. Kostar 15,9€ hjá Winfred. Þokkaleg kaup.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2017 Venus La Universal Montsant Dido 87 Points
Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant
Mjög ljós litur. Fyrsti þefur gaf klóak (og það var ekki bara ég sem fann þetta). Það var líka talað um brettonomycus. Síðan kom ávöxtur, jarðarber og í lokin tóbak.
Þegar var smakkað á víninu kom í ljós að vínið var mjög kryddað á bragðið. Pipar aðallega en einnig bökunarkrydd. Þarna voru líka grænir tónar, paprika. Mikill ferskleiki. Batnaði í glasi. Fróðlegt að vita hvernig þetta smakkast daginn eftir því það var alveg eitthvað við þetta vín þó það væri kannski svolítið fráhrindandi í byrjun. Það óx í glasi allan tímann.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No
2014 Lectores Vini Montsant Montsant Vieilles Vignes "La Deva" La Deva 88 Points
Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant
Mjög ljóst á litinn. þegar rananum var dýft í glasið kom fram tyggjólykt, ekvalyptus, mynta og smá fúkki (það var kannski vísbending um það sem gerðist daginn eftir). Á tungu: Ferskleiki, leysiefni og ávextir. Í eftirbragði kom svo fram sæta og súkkulaði. Gott jafnvægi.
Samkvæmt því sem Björgvin setti inn daginn eftir þá kom fram skemmd í víninu. Kálbögglar, sem er marcaptan ef mér skjátlast ekki.
Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No