Janúarsmakk Eðalklúbbsins 2024

Hlíðarás 10
Tasted Friday, January 26, 2024 by bitdrerik with 159 views

Introduction

Janúarsmakk Eðalklúbbsins fór fram á Hlíðarási hjá Bolla.
Meðal þess sem þurfti að skoða var stór sending frá Silvain, vini Bolla. Hún náði ekki í tæka tíð fyrir jólasmakkið en var þá bara geymd til næsta smakks.
Annars var lítið gefið upp fyrirfram um hvað væri í vændum. Við vissum bara að það myndi eitthvað spennandi gerast.
Klúbbfélagar voru allir mættir að Andra frátöldum. Yngvi, bróðir Jóns Lofts fyllti upp í hans skarð.

Flight 1 - Hrist upp í hópnum með þessu. (1 Note)

Flight 2 - Þrjú freyðandi á undan matnum. (3 Notes)

  • NV Drappier Champagne Père Pinot 86 Points

    France, Champagne

    Dökkgylltur litur. Þurrger í nefi. Svo skítalykt, mysa og smjör. Sæta í bragði í byrjun. Svo malt og rúgbrauðstónar. Mysuostur sagði Bolli. Ég var ekkert yfir mig hrifinn af þessu víni enda mysuostur ekki í uppáhaldi hjá mér.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • NV Jaume Serra Don Luciano 79 Points

    Spain

    Miklu ljósara en Drappier vínið sem kom á undan. Fúkkalykt í byrjun. Það hvarf þó fljótt. Flaskan var talin í lagi. Ananas og sápa í ilmi svo. Sæta aðallega á tungunni. Mjög óspennandi vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2010 Drappier Champagne Grande Sendrée 91 Points

    France, Champagne

    Frekar ljóst á litinn. Ger og brauðtónar í nefi. Sams konar tilfinning á tungunni. Flott jafnvægi. Fínar loftbólur.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Alls konar skinkur, pylsur, ostar og foie gras ásamt passandi vínum. (4 Notes)

  • 2022 Txakoli Gaintza Getariako Txakolina

    Spain, País Vasco, Getariako Txakolina

    Þessi var hluti af sendingunni frá Silvain. Parað með alls konar pylsum, ostum og foie gras. Sleppi einkunn því við skrifuðum ekkert niður um vínið. Það var samt fínt og fór ágætlega með matnum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2019 Cave des Producteurs de Jurançon Jurançon Eztixuri

    France, Southwest France, Jurançon

    Þessi var hluti af sendingunni frá Silvain. Parað með alls konar pylsum, ostum og foie gras. Þetta vín var aðeins sætt. Sleppi einkunn því við skrifuðum ekkert niður um vínið. Það var samt fínt og fór ágætlega með matnum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2013 Disznókő Tokaji Aszú 5 Puttonyos

    Hungary, Tokaji

    Þessi var reyndar ekki hluti af sendingunni frá Silvain þó hún væri opnuð í því samhengi. Björgvin þótti við hæfi að hafa Tokaji með foie gras.
    Parað með alls konar pylsum, ostum og foie gras. Sleppi einkunn. Ég var þó mjög sáttur við þetta vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2020 Domaine Mourguy Irouléguy

    France, Southwest France, Pays Basque, Irouléguy

    Síðasta vínið með sendingunni frá Silvain var þetta. Eins og öll hin vínin með matnum þá var pörunin bara ansi góð. Sleppi einkunn.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 4 - Þrjú flott frá Priorat. (3 Notes)

  • 2015 Celler Francisco Castillo Priorat Selección Miriam Clos Dominic 92 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Frekar ljóst á litinn. Aðeins farið að bera á öldrunartónum í litnum.
    Í nefinu fannst svo alls konar: Kókos, sítrus, vanilla, lím (UHU) og spíralykt í byrjun og svo eftir stund í glasi bættust við vindlar, sedrus og blautt píputóbak.
    Á tungunni mátti svo finna: Sætan lakkrís, salmíak, grænan pipar, einiber og appelsínu. Frekar stamt, ekki sýrumikið og þarna er ágætis fylling.
    Prýðilegt vín í alla staði sem ég held að eigi eftir að batna með auknum aldri.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2006 Cims de Porrera Priorat Les Sentius d'en Joan Bta. Domenech 92 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Orðið brúnleitt á litinn.
    Blek, svört kirsuber, blóm (lofnarblóm), þvottaefni, lakkrís, sveskjur, gúmmi og blóð í nefi.
    Brenndir hlutir, gúmmí, leysiefni, sveskjur og kakó á tungu.
    Það var þarna ákveðinn biturleiki sem dró aðeins úr stemmningunni. Ágætis vín en það voru efasemdir um hversu mikið það ætti eftir.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2006 Cims de Porrera Priorat Trosset de l'Adolf 94 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Vínið var loftað í 5 tíma.
    Meðaldökkur litur. Ekki mikil öldrun í litnum.
    Í nefi: Blóm, þvottaefni, sveskjur, gúmmí og blóð.
    Á tungunni: Ekki mikið að gerast í byrjun. Síðan sítrus, appelsínur og appelsínubörkur. Mjóg mjúkt. Lítil tannín. Virkilega gott vín en tók smá tíma að koma til.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 5 - Búrgúndareinvígið. (2 Notes)

  • 2014 Louis Jadot Savigny-lès-Beaune 1er Cru La Dominode 87 Points

    France, Burgundy, Côte de Beaune, Savigny-lès-Beaune 1er Cru

    Mjög ljóst á litinn.
    Lítið að gerast í nefinu. Einna helst brennisteinn. Ekkert spennandi ilmur það sem þó var.
    Dauft í munni. Eldspýtur, brjóstsykur, sígarettur, öskubakki og grænir tónar (paprika) á tungu.
    Ekkert sérstaklega spennandi vín og það kom í ljós að frammistaðan var ekki góð þegar hulunni var svipt af víninu. Þetta er vín sem kostar 6.500 kall í ríkinu. Það stendur engan veginn undir þeim verðmiða. Víninu til varnar þá skorar það nú yfirleitt um 90 eða jafnvel yfir það á CT. Væntanlega er þetta því ekkert sérstaklega góður árgangur.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2020 Domaine Decelle & Fils Beaune 1er Cru Les Teurons 92 Points

    France, Burgundy, Côte de Beaune, Beaune 1er Cru

    Mjög ljós litur.
    Í nefi: Fjólur, ljós ber, útihús. Mjög flottur ilmur.
    Svo á tungu: Mikill ferskleiki. Jarðarber, vindlar og kakó. Virkilega gott jafnvægi og virkilega gott vín. Þetta var jafn gott og Louis Jadot vínið var óspennandi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 6 - Kvöldinu lokað með Alicante. (1 Note)

  • 2018 Bodegas Volver Alicante Bouschet Tarima 91 Points

    Spain, Valencia, Alicante

    Meðaldökkt eða jafnvel ríflega það.
    Í nefi: Kröftugt. Eik, kaffi, bruni og kirsuber.
    Þegar smakkað á því: Dökkur ávöxtur, appelsínubörkur, lakkrís og smá biturleiki. Fínt jafnvægi. Virðist hátt í alkóhóli. Gott vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Að sjálfsögðu var þetta stórskemmtilegt smakk.
Freyðivínsþema í byrjun, á undan matnum. Svo var bragðað á alls kyns veislumat. Skinkur, paté, pylsur ostar og foie gras ásamt vínpörun frá Silvain. Ótrúlega flott. Vínin kannski ekki stórkostleg ein og sér en pöruðust vel með matnum.
Ég verð svo að játa á mig bull. Eitt af hvítvínunum sem Silvain sendi var frá Jurançon. Ég taldi að það væri frá Jura héraðinu en það er þvæla. Hið rétta er að það kemur frá SV Frakklandi, Baskahéraði þar.
Svo tókum við þrennu af toppvínum frá Priorat. Mjög áhugavert að smakka þau.
Tvö vín komu svo frá Búrgúndarhéraðinu. Áhugavert að sjá muninn á þeim.
Og að lokum smökkuðum við eitt vín frá Alicante, sem kom verulega á óvart.
Mörg vín í þessu smakki voru góð en Cims de Porrera Adolf sló allt út í mínum huga. Clos Dominic Miriam stóð sig líka vel. Búrgúndarvínið úr ferðinni okkar sl. sumar lamdi svo Louis Jadot í klessu. Kom virkilega vel út. Og svo má ekki gleyma Drappier Grand Sendrée sem kom virkilega vel út.

×
×