Héðan og þaðan

M12
Tasted Saturday, August 31, 2024 - Sunday, September 1, 2024 by Botli with 156 views

Introduction

Mættir: IB; BÁ; LG; JLB; YB; ÓAR og BE - forfallaðir: JLS og MB.
Þema var í þetta sinn, hraðsmakk, yfir í svörtuglösin og til baka í hefðbundið fagsmakk.

Flight 1 - Hraðsmakk (7 Notes)

  • 1996 Marqués del Puerto Rioja Gran Reserva 86 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja

    (8/31/2024)

    Gamalt "skápavín" sem var komið á tíma að bragða. Bar ekki með sér að vera orðið þetta aldrað þ.e. litur nokkuð eðlilegur og ekki að greina brúnku á börmum. Í nefi mátti finna leður, reykelsi, dökka niðursoðna ávexti og fjólur. Nokkuð ljúf angan.
    Í munni var það ansi ágengt súrbragð, rafhlaða, edik og balsamik voru helstu lýsingarnar. Ákveðið var að láta þetta standa og sjá hvort breyttist, líklega skánaði það en náði aldrei neinum hæðum. Áhugavert engu að síður.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2011 R. López de Heredia Rioja Reserva Viña Bosconia 88 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alta, Rioja

    (8/31/2024)

    hrsmv #2
    lykt: ryk eða skápur. niðursoðin jarðarber, blautt tóbak og sætuilmur.
    í munni: talsverð sýra og tanninríkt. Soðið kaffi í eftirbragði. Meira var nú ekki sagt, en í ljós kom að þetta vín var alls ekki það sem JLB var að leiða okkur áfram skv. miðanum! skv. miða var verið að drekka 100% Syrah frá Poboleda Priorat, sem var svo ekki raunin s.s. miðavíxl.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2021 Truchard Zinfandel 89 Points

    USA, California, Napa / Sonoma, Carneros

    (8/31/2024)

    hrsmv#3
    í nefi: Krakus jarðarber, blóm, rifsber, krækiber, sólber - ávaxtasulta!
    í munni: krækiber, negull, eik, cedrus.
    Indriði negldi þrúguna en við vorum ekki að hitta á að þetta var Trukkurinn frá HL! Við vorum með það í smakki í febrúar á þessu ári, fékk umsögnina "óvæntasta vín kvöldsins" það kvöldið.
    BE fékk vínið til eftirdrykkju og má segja að það heldur sér nokkuð vel milli daga. Krækiber, krydd eru ráðandi á öðrum degi. Frambærilegt vín á skaplegu verði (að mig minnir um 3500kr).
    80/20 frönsk- vs. Am-eik. Smakknótur frá blaði (sem við hittum nú bara ansi vel á margt þar): An exotic nose of boysenberry, cherry and cassis with hints of cedar, tobacco and mint. The mouth is filled with jammy flavors of ripe plum, cranberry and sweet vanilla. Round tannins and firm acidity provide a lengthy finish of spice and red fruits.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2017 Cellar Totó Marques Priorat Shirus 91 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    (8/31/2024)

    hrsmv#4
    Vín þurfti skráningar við, á CT, lítið upplag eða 680fl eða svo. Prades 950 liggur við hliðina (undir-hundur) á þessu víni.
    í nefi: lofnarblóm, talsv. alkóhól sem mætir manni, fjólur, píputóbak og reykur.
    í munni: lakkrís, sv.pipar, fura, fáguð tannín. Fékk almennt ágætis umsögn. Man ekki hver var með þetta upp á seinnidagssmökkun?
    Það skýrist.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2017 Suertes del Marqués Valle de la Orotava Candio 85 Points

    Spain, Canary Islands, Tenerife, Valle de la Orotava

    (8/31/2024)

    hrsmv#5
    hér var nokkuð ljóst strax í upphafi að við vorum staddir á eldfjallaeyju!
    í nefi: stækja af brennisteinstvíildi, holræsi, gúmmí, sólber með vott af Amaretto a.k.a. möndlur.
    í munni: aðallega hvítur pipar og kaffi í eftirbragði. Lagaðist líttilega við loftun, þó ekki þannig að maður tæki á sig krók til að ná í aðra flösku.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2019 Bodegas Protos Ribera del Duero Protos 27 92 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    (8/31/2024)

    hrsmv#6
    hér fór að kenna ýmissa grasa og ljóst að á ferðinni var líklega annað tveggja bestu vínanna fram til þessa í hrsmv-röðinni.
    í nefi: plóma, kirsuber, lofnarblóm, leður og anis.
    í munni: fáguð eik, súkkulaði, krydd (bökunar), lakkrís og vanilla.
    Held að það sem mest kom á óvart var að við vorum ekki að skynja þessi "týpísku" RdD einkenni s.s. fjós, sýrustigið og það sem stundum brýst fram, appelsína/börkur. Frábært vín á góðu verði, eða um 24 júró-einingar.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2020 Ca'N Verdura Manto Negro Binissalem-Mallorca SuperNova 85 Points

    Spain, Balearic Islands, Binissalem-Mallorca

    (8/31/2024)

    hrsmv#7
    annað eyjavín sem fékk litla athygli og umsögn.
    í nefi: fjós, hangikjöt, fita (kjöt), vindlar og við vorum að leita að grænu kryddi s.s. rósmarin, timían eða slíku.
    í munni: græn paprika, kaffi og krydd.
    Það var giskað á að þetta hlyti að vita að hlíðum miðjarðarhafs sem reyndist rétt, eða nánar umlukið því.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - svörtubotnar (2 Notes)

í boði JLB voru tvö vín

  • NV Cantine Ceci Lambrusco Amabile Rosato Emilia IGT 80 Points

    Italy, Emilia-Romagna, Emilia IGT

    (8/31/2024)

    Svartur á leik #1

    áhugavert að reyna að finna út hvað er í glasinu, hvítvín var fyrsta gisk.
    mikil lykt af ananas, perum, citrus, trópískir ávextir. í munni var s.s. bara mikil sæta ofg gospillur. Setti eitthvað Lambrusco en veit ekki hvort rétta flaskan. Var drukkið volgt og það er líklegt til að auka á væmnistuðulinn.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2021 Señorio de Barahonda Yecla Summum 89 Points

    Spain, Murcia, Yecla

    (8/31/2024)

    svartglasa#2

    hér var nú nokkuð greinilegt að við vorum þó með rautt í glasinu!
    fundum í nefi: sætu, vindla, vanillu og eik og í bragði, eikina, grænan pipar, brunatóna, vanillu og brómber. Held að Indriði hafi ratað í rétta átt með þetta og var í Yecla, tengdi við Hecula og var það vel af sér vikið.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Ritual (5 Notes)

5-vín, fjögur lönd og tvær heimsálfur

  • 2010 Agricola Labastida Rioja El Belisario 86 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alavesa, Rioja

    (8/31/2024)

    Hér erum við komnir í síðasta fasa smakkkvöldsins og byrjað á gömlum kunningja sem þekktist þó ekki á götu og Indriði átti lýsingu kvöldsins, kemur í samantektinni neðantil.

    í nefi var hér að finna: rósir, krydd, sólber, leður og í munni var nefnt anís, lakkrís, pipar og plóma. Rammt eftirbragð. Talsverð vonbrigði og var þetta vín ekki svona í minnum manna, Lúðvík á 2010 árg í skápnum ef til samanburðarsmakks þarf að koma. Þetta var eitthvað OFF í þetta skiptið.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2016 Château Lafon-Rochet 91 Points

    France, Bordeaux, Médoc, Saint-Estèphe

    (8/31/2024)

    Umræður um staðsetningu, hérað og land fór víða. Endaði þó í vinstri hlið Bordeaux og var það líklega súrinn sem skilaði þeirri niðurstöðu.
    í nefi: táfýla, ostur, súrmjólk, en það mýktist þó eftir smá stund.
    í munni: súrt, kaffi, miðl. tannín og ekki margt annað sagt. Þetta er s.s. blendingur en að megni til CS og voru menn sammála að þetta vín yxi í glasinu og ætti kannski nokkur ár til að ná hæðum.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2019 Ridge Cabernet Sauvignon Estate 93 Points

    USA, California, Santa Cruz Mountains

    (8/31/2024)

    hér á ferðinni nokkuð þéttur og kröftugur kabbi.
    í nefi mátti finna vanillu, jarðarber, svört kirsuber, hindber og toffee.
    bragð; græn krydd, hvítur pipar, kakó, brjóstsykur, miðlungs sýra og tannín mjúk, cedrus. Frábært vín sem batnar í glasi, annað tveggja bestu vína kvöldsins.

    Post a Comment / 2 people found this helpful, do you? Yes - No

  • 2018 Bodegas Arzuaga Navarro Ribera del Duero Gran Reserva 90 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    (8/31/2024)

    Hér kom flaska sem BÁ hafði lumað á síðan við fórum í Hörpu-spánarsmakk í vor. Fengum að bragða af þessu víni sem var sk. undirborðsvín (má líka lesast undir-borð-svín).
    neftónar af cedrus, greni, karamella og vanilla með bragði af vanillu-stöng, karamellu og súkkulaði!! sem sagt það lesist út að bragð og lykt harmonerar ansi vel saman og einkenndi vínið. Það er þó ágætlega drekkanlegt þó kannski ekki verði það fyrir valinu sem vín með steikinni, en álitlegt eitt og sér.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2018 Il Poggione (Proprietá Franceschi) Brunello di Montalcino 86 Points

    Italy, Tuscany, Montalcino, Brunello di Montalcino

    (8/31/2024)

    Fundum í nefi saumavélaolíu og grafít, brenndir tónar.
    í bragði var að finna olíu, brennda tóna, málmkennt í eftirbragði.
    Þetta er vandaður framleiðandi en líklega var þessi of ung ennþá og gæti átt eftir að koma sterk inn eftir +5 ár ef ekki 10?

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

Closing

Áhugaverð vín innan um s.s. Marques del Puerto sem Andri dró fram, var með fínustu angan en líklega munað fífil sinn fegurri. Vinstri frakkinn (Laton Rochet) féll vel í kramið hjá öllum nema ritara, sem var ekki uppnuminn.
Lambrusco í svörtu glasi gerði lítið fyrir vínið, en JLB sá um svartglasatvennu að þessu sinni. Góð æfing. Besta lýsing kvöldsins kom með El Belisario "sorglegt eins og falleg stelpa sem er búin að meika sig of mikið" IB átti frasann, en vínið olli vonbrigðum.

×
×