Eðalklúbbur 28.feb. M12

Marbakkabraut
Tasted Monday, March 3, 2025 by Botli with 147 views

Introduction

Mættir: BÁ, IB, JLB, YÞB, LG, MB og BE sem ritaði að þessu sinni í fjarveru aðalritara JLS en hann og ÓAR voru ekki þetta kvöld.

Flight 1 - Hraðsmakk (7 Notes)

Hér var reynt á meðlimi, öll vín koma frá HL og var það gefið fyrirfram. Svo var bara að finna út úr þessu, það gekk misjafnlega en þó rataðist til í einhverjum þeirra.

  • 2019 Izadi Rioja El Regalo 86 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alavesa, Rioja

    Í grönum mátti finna bruna, lakklykt og olíu. Í munni var það aðallega þurrt og rammt en bragðlega var að finna lakkrís og krækiberjahrat. Talsverð sýra og tannín frekleg. Ójafnvægi var niðurstaðan og ætti þetta vín ágætis möguleika á að batna.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2018 Perelada Empordà Finca La Garriga 90 Points

    Spain, Catalunya, Empordà

    Nefi, sérrý, oxunartónar, tóbak, spíralykt, bökunarkrydd (IB nefndi cement, það mátti alveg vera). Í munni fundum við sæt kirsuber, plómur, rúsínur og anís. Meðal-sýra, ekki laust við lofnarblóm. Prýðilegt vín og höfum við smakka Finca Garbet sem er jú skör ofar. Bolli fékk þessa flösku til að rannsaka á degi 2. Sumt rímaði við kvöldið áður, en heilt yfir var það farið að fletjast aðeins út! Fann í nefi, lakk, bílskúr a.k.a olíu. Bragðið var aðeins farið að soðna, s.s. kaffi, sveskjur. Fann líka bökunarkrydd, einiber og salmíak. Alls ekki fráleitt en var betra á opnunardegi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2018 Bodegas Valduero Ribera del Duero Una Cepa 88 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Í nefi, mentól, sæt vanilla, jarðarber, marascino kirsuber og kardó-dropar. Bragð, niðursoðin jarðarber, pappi, krydd s.s. hvítur pipar. Var ansi sætt og frekar sultulegt. Römbuðum ekki á þetta sögufræga vín sem hefur glatt marga innan klúbbsins vegna samlíkingar við annað vín sk. "gulan hala". En það hefur talsvert af þannig einkennum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2019 Bodegas Orben Rioja Orben 85 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alavesa, Rioja

    Hér mátti finna tóbak, brenndir leðurskór (held að BÁ hafi átt þennan), mentól og salmíak í nefi.
    Í munni og bragði var píputóbak, pipar, einiber, niðursoðið, kaffi og eik.
    Fékk almennt ekki neina lofandi dóma og niðurlagið var að þetta væri vín í ójafnvægi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2017 Finca Villacreces Ribera del Duero Flawed

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Í nefi fundum við sveitt leður, rjóma, tóbak og rauð ber.
    Þegar bragðað var þá var eitthvað sem truflaði, skildi eftir sig smálegan fúkka eða kork. Metið sem "semi-flawed" það var ekki það áberandi ónýtt að ekki hefði verið hægt að þræla því niður með bita af hákarli, en hann var bara ekki á boðstólum!

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2012 Bodegas Julián Chivite Navarra Reserva Coleccion 125 83 Points

    Spain, Navarra

    Í nefi, öldrun, fjós, hangikjöt, reykur, bbq og vottur af "skurepulver" sem þekkt var á mörgum heimilum.
    Í munni var að finna púrtvínstóna, soðið og beiskt í eftirbragði. Þetta gæti hafa verið ágætisvín fyrir nokkrum árum, en þetta hefur líklega mátt muna fífil sinn fegurri.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2019 Bodegas Orben Rioja Malpuesto 92 Points

    Spain, La Rioja, La Rioja Alavesa, Rioja

    Í nefi, jarðarber, leður, skósverta, sólber og mentól.
    Í munni, jarðarber, sólber, tóbak, minta og appelsína. IB hafði á orði svo skemmtilega; að hér væri gömul sál í ungum líkama á ferðinni.
    Besta hraðsmakksvín kvöldsins, og bar af Garriga sem þó stóð sig vel.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - Blint par úr dalnum (2 Notes)

BÁ kom með þraut sem fólst í að finna vínið, framleiðanda og árganga.

  • 2020 Bodegas AAlto Ribera del Duero AAlto 90 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Hér greindum við greni, ryk, múskat og græna tóna í nefi.
    Í munni, mjúk tannín, piparmynta og kaffi. Fékk lítið að moða úr þegar kom að braðgnótum. Þetta er fínasta vín og átti BÁ von á að menn rötuðu á það, held að það hafi ekki náðst.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2008 Bodegas AAlto Ribera del Duero P.S.

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Hér vorum við að finna blek, bláber og dökka þroskaða ávexti. Sýran er farin og á ekkert eftir. Ekki var rétt að gefa þessu einkunn og því sleppt.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Blindur kvintett (5 Notes)

LG, MB, IB og BE völdu vín í blindni.

  • 2017 Sao del Coster Priorat Terram 88 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Í nefi, plóma, oxun, sulta, sérrý (þurrt Madeira), Bic-blekpenni og appelsínubörkur.
    í munni, appelsína, þurrt, sætukeimur, bruni.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2022 Aberdeen Wine Company Cabernet Sauvignon Black Angus Single Vineyard 89 Points

    Australia, Victoria, Central Victoria, Heathcote

    lykt, kakó, bláber, rifsber og tóbak.
    Bragð, brennd tunna, eucalyptus, hundasúra og hvítur pipar.
    Vantaði jafnvægi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2015 Fontanafredda Barolo Serralunga d'Alba 87 Points

    Italy, Piedmont, Langhe, Barolo

    Lykt, sveskjur og skítalykt. Bragð járn og edik. Minnst var sagt og skrifað um þetta vín, það var ekki almenn hrifning.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2020 Viña von Siebenthal Carménère 89 Points

    Chile, Aconcagua Valley, Panquehue

    lykt í upphafi: sveittur ullarsokkur, táfýla, benzín
    svo eftir opnun og þyrlun þá kom
    Juicy Fruit tyggjó, kaffikorgur, UHU, WD40, greni, kanill og olía.
    Þetta var það vín sem fékk flesta lyktardóma kvöldsins.
    Í munni fundum við krydd, kanil og brennt gúmmí.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2010 Bodegas Valduero Ribera del Duero 6 Años Reserva Premium 91 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    í nefi, sýra, soðinn ávöxtur, púður (flugeldar), kjöt, táfýla og rúgbrauð.
    í munni, járn, kaffi, súrir tónar, kirsuber.
    Náði ágætis flugi og er að batna í glasi á meðan smakki stóð. Árgangur á að vera með þeim betri skv heimildum beint úr héraði. Spurning hvort hefði þolað loftun?

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Áhugavert smakk að vanda, þó var ekkert vín "til háborinnar fyrirmyndar" eins og sagt er. Valduero 6 anos var ljúft, Malpuesto bar af í hraðsmakki og La Garriga stóð fyrir sínu. Almennt má segja að meðal-skor kvöldsins hafi verið í lægri kantinum.

×
×