Marssmakk Eðalklúbbsins 2025

Hlíðarás 10
Tasted Friday, March 28, 2025 by bitdrerik with 199 views

Introduction

Það var búið að stefna að því að halda Janus smakk með fjórum mismunandi árgöngum í ansi langan tíma. Nú var komið að því. Fyrir utan Janus var líka hvítt þema og svo kafli með dýrum og flottum vínum úr ýmsum áttum. Janus vínin voru ekki smökkuð blint en öll hin vínin voru það.
Að þessu sinni voru mættir: Björgvin, Bolli, Guðmundur, Indriði, Jón Loftur, Lúðvík, Magnús, Jón Lárus, ritari. Þar að auki voru gestir Hafliði og Stebbi vínþjónn.

Flight 1 - Smakkinu ýtt af stað með þessu víni. (1 Note)

Flight 2 - Hvítt þema. (4 Notes)

  • 2022 Truchard Chardonnay 90 Points

    USA, California, Napa / Sonoma, Carneros

    Ljósgulur litur, aðeins út í grænt. Mjög ljós litur.
    Í nefi mátti finna apríkósur, steinefni, jörð, lychee og vott af eik. Sveitalegir tónar.
    Á tungu var það mjög ferskt og sýruríkt. Þarna var líka fita, smjör. Greipaldin, blóm og smá beiskja.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2023 En Numeros Vermells Pedro Ximénez Del Carlos 87 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Björgvin sagðist hafa umhellt þessari þannig: Opnuð um morguninn. Umhellt í karöflu. Hrist rösklega í 30 sek. ca. og svo hellt aftur til baka í flösku. Sömu umhellingu fengu Janus 2018 og Mas Doix 1902. Ásamt The Hexe. Nema The Hexe fékk bara tveggja tíma meðferð. Ekki ca. 12 tíma eins og hin vínin.
    Dekkri gulur litur en á Truchard víninu. Samt ennþá frekar ljóst. Þarna voru komnir aðeins gylltir tónar.
    Ilmur af perum. Svo var talað um kemíska lykt (permanentvökvi, peroxíð). Þvottaefni, hreinsiefni, munnskol. Undirliggjandi sítrustónar, límóna helst.
    Svo þegar var bragðað á víninu þá mátti finna: Létta og þægilega sýru. Perur í miklu magni. Það var talað um mojito/tekíla líkindi. Þykkt á tungu og milt. Frekar hlutlaust. Í eftirbragði komu fram möndlur og mynta.
    Þægilegt vín. Það heillaði mig ekkert sérstaklega mikið.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2021 Raul Pérez Rías Baixas Sketch 89 Points

    Spain, Galicia, Rías Baixas

    Dekkri gulur litur en á fyrri tveimur vínum. Þarna komu líka fram gylltir tónar.
    Af víninu mátti m.a. finna í nefi: Rauð epli, kattarhland, ger. Þarna var líka að finna blautan ullarsokk. Ostur var þarna, geitaostur. Undirliggjandi var svo sítrus. Þéttur smjörkenndur ilmur.
    Svo í munni: Þar mátti finna apríkósur og sítrónur. Svo perubrjóstsykur og súrt grænt epli. Flott sýra. Virðist vera sætt í byrjun en smátt og smátt kemur fram sýra.
    Ágætis vín. Mér finnst vínið samt tæplega ná að standa undir 57€ verðmiða.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2018 Arndt F. Werner Lottenstück Weißer Burgunder trocken 91 Points

    Germany, Rheinhessen

    Strágulur litur. Ekki ósvipaður og á Sketch víninu.
    Ilmur: Perubrjóstsykur, ananas, banani og romm essens. Aðlaðandi og þægileg lykt.
    Bragð: Sætur ananas, banani, reykur. Fita, smjör. Mikil þykkt í bragði. Létt og ekki hvöss sýra. Svo eftir smástund þá komu fram eikartónar, vanilla og bruni eða sót á tungunni. Virkilega flott vín.
    Björgvin var selt þetta vín sem riesling en við nánari athugun kom í ljós að þetta var weißer burgunder sem er þýska heitið á chardonnay. Við vorum líka mjög hissa þegar vínið var afhjúpað sem riesling þar sem flestir ef ekki allir töldu að þetta væri chardonnay.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

Flight 3 - Gómurinn hreinsaður fyrir Janus línuna. (1 Note)

  • 2019 Bodegas Alejandro Fernández Ribera del Duero Tinto Pesquera Reserva 89 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Millidökkur litur. Liturinn benti til þess að vínið væri orðið allavega fimma ára gamalt.
    Í nefi: Kanill, kanilkex (LU), sólberjasulta, ryk og eik. Svo komu kryddtónar. Pipar og rósmarín. Þarna var líka að finna sauðatað og kemíska lykt. Síðast kom svo fram anís og mentól.
    Á tungunni þegar vínið var smakkað: Sólber, mold, jörð og krækiberjahrat. Talsverð tannín. Eftir smástund komu svo lakkrís, anís, mentól, svartur pipar og strokleður.
    Ágætis vín.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

Flight 4 - Janus, fjórir árgangar. (4 Notes)

  • 2018 Bodegas Alejandro Fernández Ribera del Duero Janus Gran Reserva Pesquera 93 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Frekar dökkur litur. Unglegur
    Ilmurinn byrjaði á sætum tónum. Marsípan, möndlumassi. Þarna voru svo mjólkurtónar og svo sítrusbörkur (appelsínu). Endaði svo á kaffilíkjör og karamellu. Mjög þægilegur ilmur.
    Á tungu mátti svo greina dökka tóna. Brennd eik, espressó kaffi, kakó. Svo eftir smá stund í glasinu kom fram dökkur ávöxtur og kaffilíkjör. Fínasta jafnvægi en skortir kannski fínleika ennþá.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2003 Bodegas Alejandro Fernández Ribera del Duero Janus Gran Reserva Pesquera

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Frekar dökkur litur. Komnir brúnir og appelsínugulir tónar í kantinn.
    Nefið byrjaði á fjósi og kúamykju. Það rauk svo fljótt úr víninur. Þá stóðu eftir dökkir ávextir, plómur. Þarna voru líka niðursoðin jarðarber. Þegar þarna var komið sögu töldu a.m.k. þrír í hópnum að vínið væri skemmt, korkað. Það voru samt ekki allir sem greindu það í ilminum. Þegar haldið var áfram að þefa af víninu þá kom fram svöl lykt, mentól.
    Þegar vínið var smakkað þá töldu sumir sig finna kork áfram. Ég fann það nú ekki en það var mjög dauft yfir víninu. Nokkrar lýsingar sem féllu voru: Sjávartónar, blautur sjóstakkur, skelfiskur. Ég held að lokaniðurstaðan hafi verið að vínið væri ekki beinlínis skemmt (korkurinn jókst til dæmis ekki þegar vínið hafði staðið í glasi góða stund) en að það væri eitthvað skakkt við það. Það var samt talsverð óvissa um þetta mál. Þeirri skýringu var kastað fram að þar sem það kæmi frá mjög heitu ári þá væri það hreinlega á niðurleið. Veit ekki hvað til er í því en það var samt greinilegt að þetta vín var ekki eins og það ætti að vera. Sleppi einkunn. Það væri bara ósanngjarnt að gefa því einkunn.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 1995 Bodegas Alejandro Fernández Ribera del Duero Janus Gran Reserva Pesquera 96 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Liturinn svipaður og í fyrri tveimur Janusar vínum. Merkilega lítil öldrunareinkenni að sjá.
    Til að byrja með mátti greina útihús í ilmi. Svo kom fram kjöt, kaffi, kakó og sviðalykt.
    Þegar smakkað var á víninu þá er allt á sínum stað. Ótrúlega flott jafnvægi. Kjöttónar, carpaccio og grillað kjöt. Kjötvín semsagt. Frábært vín!

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 1994 Bodegas Alejandro Fernández Ribera del Duero Janus Gran Reserva Pesquera 97 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Það var mjög mikill litarmunur á þessu og fyrri þremur Janusarvínunum sem við smökkuðum. Þetta var dekkra og greinilegir öldrunartónar, brúnir og appelsínugulir.
    Þess má geta að þetta vín kom frá búð í Belgíu sem sérhæfir sig í að kaupa m.a. vín úr dánarbúum. Hvernig vínið var geymt er því óþekkt.
    Í nefi: Plómur, kryddsulta (chutney), tóbak, vindlar, píputóbak. Skemmtilegur ilmur.
    Á tungunni: Flott jafnvægi, silkimjúkt. Dökkir tónar. Dökkur ávöxtur, kaffi og jafnvel dökkt súkkulaði. Eik gægðist aðeins fram og það mátti greina vanillu.
    Frábært vín. Eitt af þeim bestu sem ég hef smakkað.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

Flight 5 - Gómurinn hreinsaður aftur. (1 Note)

  • 2016 Bodegas Trus Ribera del Duero Reserva 91 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Dökkt á litinn. Fjólublá slikja á víninu. Við töldum það vera þriggja til fjögurra ára en svo kom í ljós að það var níu ára.
    Lakklykt og leysiefnalykt í nefi. Einnig dökk kirsuber og sýrðir tónar.
    Þegar bragðað var á víninu kom fram: Svartur pipar og brómber. Þéttur ávöxtur og mikil tannín. Þegar vínið hafði staðið aðeins í glasi bættust við apótekaralakkrís og barrnálar. Mikill ferskleiki.
    Ég var ekki yfir mig hrifinn í fyrstu en vínið vann stöðugt á í glasi og endaði á að vera prýðisgott.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

Flight 6 - Fjögur dýr og vönduð vín. (4 Notes)

  • 2015 Mas Doix Priorat Centenary Carignan 1902

    Spain, Catalunya, Priorat

    Frekar dökkur litur. Aðeins farið að sjást öldrunareinkenni á litnum.
    Nebbi: Smá kjötlykt, bruni. Spítala eða sótthreinsunarlykt, hreinsiefni og oxunartónar. Þetta vék svo fyrir sætum tónum, marsípani, kokkteilkirsuberjum, sveskjum og rúsínum.
    Í munni: Dökkir ávextir. Svolítið flatt. Ódýrt í bragði, ódýr ávöxtur. Kóka-kóla. Ekki gott jafnvægi.
    Það var greinilega eitthvað bogið við þetta vín. Við höfum smakkað það áður og þá var það frábært. Með betri vínum. Þessi flaska var kannski ekki beinlínis skemmd en heldur ekki alveg í lagi. Svona svipað og Janus 2003 flaskan. Synd.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2010 Sangenís i Vaqué Priorat Clos Monlleó 92 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Meðaldökkur litur. Farin að sjást smá brúnka í jöðrum. Við töldum að það væri tíu ára en svo reyndist það vera fimmtán ára gamalt.
    Allavega. Nefið gaf af sér: Jarðarber, smá fjós og sveitalykt. Síðar komu fram kirsuber og sýrutónar. Þykkur og mikill ilmur.
    Bragðið af víninu var aðeins sætt í byrjun. Það var líka kryddað. Þarna mátti líka finna þroskuð ber. Einhver minntist á steinefni og blauta steypu. Flókið, ferskt og með ákveðinn léttleika.
    Fínt vín.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2019 Saxum The Hexe 94 Points

    USA, California, Central Coast, Paso Robles Willow Creek District

    Tveggja tíma umhelling.
    Mjög dökkur litur. Unglegur.
    Angan: Gúmmí, jarðvegur, leður. Smá hiti í nefi sem bendir til hárrar áfengisprósentu. Einiber og kryddtónar.
    Bragð: Flókið bragð. Mjög mikið ávaxtabragð. Gervilegt sagði einhver. Sólberjahlaup, ribena safi og maraschino kirsuber. Nett eik.
    Var svolítið hrjúft í byrjun en batnaði mikið í glasinu. Verulega gott vín.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

  • 2016 Bodegas Mas Alta Priorat La Basseta 91 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Ég missti af síðasta víninu. Bolli tók að sér að skrifa smakknótur fyrir það.

    Bolli skrifaði
    Í nefi: oxunartónar, lím, olía, mynta, malt, lofnarblóm og ritari fann smá ælulykt (gaf hint um borg í Svíþjóð eða Uppsalir).

    Í munni: soðið kaffi, svört kirsuber, brómber.

    Heilt yfir var nú bara ánægja með vínið og gaf öllum færi á einkunnagjöf sem sveiflaðist frá 88pkt frá Stebba en aðrir voru 90-92pktar. Enduðum í 91pkt.

    Post a Comment / 1 person found this helpful, do you? Yes - No

Closing

Frábært smakk! Með þeim betri sem klúbburinn hefur verið með.
Hvítvínsþemað var mjög vel heppnað. Við meira að segja römbuðum á sumt rétt þar.
Janus lóðrétta smakkið var svo ótrúlega flott. Eitthvað sem verður seint endurtekið.
Dýru og flottu vínin stóðu svo vel undir sínu.
Í mínum huga voru tvö vín langbestu vín kvöldsins. Það voru Janus 1995 og Janus 1994. Bæði stórgóð og með betri vínum sem ég hef smakkað.
Mas Doix 1902 var síðan vonbrigði kvöldsins. Sú flaska var eitthvað skrítin. Vínið alls ekki eins og það ætti að vera.

×
×