Marssmakk Eðalklúbbsins 2026

Bólstaðarhlíð 29
Tasted Friday, March 27, 2026 by bitdrerik with 46 views

Introduction

Í þetta skiptið voru mættir sex af föstum meðlimum klúbbsins. Indriði, Magnús og Lúðvík voru fjarverandi. Í þeirra stað voru Hafliði og Stéphane.
Meginþema kvöldsins var tvíþætt. Annars vegar að skoða auðgreinanlegar hvítvínsþrúgur og hins vegar skoða rauðu þrúguna cabernet franc. Ýmislegt fleira var svo tínt til.

Flight 1 - Opnunarvín (2 Notes)

  • 2022 Domaine Lafage Côtes Catalanes Double Passage 87 Points

    France, Languedoc Roussillon, Roussillon, Côtes Catalanes

    Þetta vín var opnað áður en hefðbundið smakk hófst. Ekki miklar nótur sem komu fram um það.
    Í nefi: Soðnir og sultaðir tónar. Smjör. Sáputónar.
    Svo á tungu: Sulta, sveskja. Hráir tónar. Þægilegt en ekkert sérstaklega spennandi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • NV Jacquesson & Fils Champagne Brut Perfection 93 Points

    France, Champagne

    Hafliði mætti með rúmlega 20 ára gamla Jacquesson flösku. Hún var líka opnuð fyrir hefðbundið smakk.
    Liturinn var frekar ljós.
    Þarna mátti finna ilm af gráfíkjum og sérríi.
    Svo þegar var bragðað á víninu þá var þar að finna brauð, malt, rúgbrauð, ristað brauð, bismark brjóstsykur og einhvers konar olíu.
    Þetta var virkilega flott kampavín. Þrátt fyrir að vera ekki árgangskampavín þá var engin þreytumerki að finna á því. Orðið þroskað og áhugavert eftir rúm 20 ár.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 2 - Nokkur auðgreinanleg hvítvín (6 Notes)

  • 2022 Pazo de Señoráns Albariño Rías Baixas 88 Points

    Spain, Galicia, Rías Baixas

    Þá var komið að því að smakka nokkur hvítvín, sem fyrsta lið í smakkinu.
    Liturinn á þessu víni var frekar ljós.
    Þarna mátti greina perur, kokteilávexti og kattarhland í nefi. Síðar svo perubrjóstsykur, núggat, brenndur bismark brjóstsykur, beikon, reykur og olíutónar.
    Í munni sýruríkt. Þarna var líka greipaldin, fita, olía. Malólaktik gerjun.
    Þegar við fundum kattarhlandslyktina þá fórum við óhjákvæmilega að hugsa um sauvignon blanc. Það var svo ekkert annað sem studdi þá tilgátu þannig að við vorum svolítið týndir með hvaða þrúga þetta væri. Gott vín.
    Ég fékk svo restina af víninu heim með mér til frekari skoðunar. Smakkaði það svo daginn eftir og niðurstaðan var mjög svipuð og við fundum í smakkinu. Mjög frambærilegt vín og prýðileg kaup (16,6€ eða um 4.200 ISK).

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2024 Suertes del Marqués Valle de la Orotava Vidonia 91 Points

    Spain, Canary Islands, Tenerife, Valle de la Orotava

    Ég held að Hafliði hafi komið með þetta vín og lagt í púkkið.
    Fíngerður ilmur. Kryddtónar, múskat. Hunang. Þarna mátti líka greina hvít blóm og lofnarblóm. Græn epli, pera og steinefni komu líka þarna fyrir. Brunatónar eins og úr púströri.
    Svo á tungunni. Talsverð sýra, græn epli, hvít ferskja og óþroskaðar plómur (mirabelles). Einhver nefndi steiktan hvítlauk. Svo var þarna líka að finna steinefni og blauta steina. Fíngert, snyrtilegt og flókið. Mjög fínt vín.
    Við vorum nú alveg úti á þekju með það hvaðan þetta vín kæmi eða hver þrúgan væri. Það var svo upplýst að þetta væri frá Kanaríeyjum og að þrúgan væri listan blanco. Ekki algengasta þrúgan.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2023 Domaine Thomas & Fils Sancerre Le Pierrier

    France, Loire Valley, Upper Loire, Sancerre

    Mjög ljós litur.
    Sæt melóna (cantaloupe), perur, suðrænir ávextir, hey. Svo hnetur, valhnetur og vanilla í nefi.
    Á tungu er ekki að finna mikla sýru. Ávaxtaríkt, hunang, olía og bylgjupappi. Sæta í eftirbragði. Málmbragð. Frekar þunnt.
    Við vorum ekki hrifnir af þessu víni. Það var rætt um hvort það væri skemmt. Það var nú ekki talið að svo væri en spennandi var vínið ekki. Þegar hulunni var svipt af því og við sáum að þetta væri Sancerre þá urðum við mjög hissa því þarna vantaði öll helstu einkenni sem maður tengir við Sancerre.
    Ég fékk svo restina af víninu heim með mér til frekari skoðunar. Smakkaði það svo daginn eftir og niðurstaðan var sú sama. Dempað og óspennandi en líklega ekki skemmt. Ég sleppi einkunn en miðað við þessa frammistöðu þá ætti að ekki skilið meira en 82-84 punkta.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2005 Robert Mondavi Winery Chardonnay Napa Valley

    USA, California, Napa Valley

    Ljósgylltur litur. Mjög flottur í glasi.
    Malt, oxun, sherrí, spælt egg þegar þefað af víninu. Þarna var líka mangó og kryddsulta. Eftir smá stund komu svo fram reykjartónar, eik, brenndar rúsínur, hvítt súkkulaði, crème brûlée, blæjuber og brennisteinn.
    Svo var bragðað á víninu. Þar mætti manni mikil sýra, apríkósa, krydd, olía. Og eftir mjög skamma stund í glasinu pappakassi og næstum ediktónar.
    Vín sem er greinilega komið vel yfir toppinn. Dugði í örskamma stund í glasinu en féll svo. Engin einkunn gefin núna en þetta hefur vafalaust verið ágætis vín þegar það var upp á sitt besta.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2017 Terroir Al Limit Soc. Lda. Priorat Muscat

    Spain, Catalunya, Priorat

    Dökkstrágult á litinn.
    Í nefi fundum við m.a. rúgbrauð, kóla, lofnarblóm, ígulber (öðru nafni litkaber e. lychee). Líka þroskaðan sítrus og basil.
    Á gómnum: Oxunartónar, mjög þroskaður sítrus. Útþynntur Grand Marnier.
    Þetta er vín frá mjög virtum framleiðanda. Eins og með Sancerre vínið áður þá fundum við ekki mörg einkenni sem vín úr múskat þrúgu eru þekkt fyrir. Það var rætt um hvort vínið væri ónýtt en það var engin augljós skemmd á því. Sleppi einkunn að þessu sinni.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2023 Guimaro Ribeira Sacra Godello Cepas Viejas 87 Points

    Spain, Galicia, Ribeira Sacra

    Ljós strágulur litur.
    Steinefni, olía, skeljar, sjór, ferskleiki þegar var þefað af víninu. Svo bættust við möndlur, nýslegið gras, kattarhland, vindlar, reykur, tóbak og steinefni.
    Á tungunni var svo talsverð sýra, mandarínur, appelsínur. Mikill sítrus.
    Ágætis vín.
    Björgvin tók restina með heim og sagði að það hefði verið vont daginn eftir og því endað í vaskinum.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 3 - Nokkur torgreinanleg rauðvín (5 Notes)

  • 2018 Cellar Cedo Anguera Montsant Clònic 85 Points

    Spain, Catalunya, Tarragona, Montsant

    Meðaldökkur litur.
    Í nefi: Leir, tjara, lakkrís, bleikt strokleður (Faber Castell), hrat leður, blek, bírópenni, sólber, mjólkurtónarog í lokin græn paprika, grænt krydd og gúrka. Alls konar að gerast í ilminum.
    Því miður þá fylgdi bragðið ekki ilminum. Þarna var brennd spíta, sótaðir tónar, anís. Þurrkandi en mjúk tannín. Frekar þunnt í bragði.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2018 Bosque de Matasnos Ribera del Duero Tempranillo Malbec 94 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Mjög dökkur litur.
    Mynta, grænir tónar, kuldi, sjávartónar, bleia, reykt kjöt, timjan og svartur pipar í nefi.
    Svo á tungunni: Anís, lakkrís, gúmmí, sólber, ætisveppir, jarðartónar. Þurrkandi tannín. Mikil eik.
    Það var mjög erfitt að staðsetja þetta vín. Eitt af þessum vínum í smakkinu þar sem vínið var langt frá staðalímynd héraðsins.
    Þetta vín fæst núna á 53€ sem ég held að séu alls ekki slæm kaup.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2018 Dominio Dostares Cumal 84 Points

    Spain, Castilla y León, Vino de la Tierra de Castilla y León

    Meðaldökkur litur. Brúnn kantur.
    Þegar þefað er af víninu koma fram: Sulta, vanilla, púðursykur, súr kjötlykt. Le Bastogne kex var líka nefnt. Frekar lokað.
    Það sem við fundum svo á tungu var: Berjahrat, sulta, bakaðir tónar, brunatónar, græn paprika og málmkenndir tónar. Ekkert sérstaklega spennandi vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2023 Paris Wine Company Les Athlètes du Vin Cabernet Franc 84 Points

    France, Loire Valley, Touraine, Chinon

    Mjög ljóst á litinn. Pinot noir litur. Brúnt í kanti.
    Í nefi: Mynta, jarðarber, skógarbotn (með grænu ívafi), hey, útikamar, hiti, blóð, járn, rauð ber, rósir og græn paprika.
    Í munni: Pipar, tjara, kaffi, þvottaefnistónar. Ágengur ávöxtur. Leður. Frekar þunnt og létt.
    Við vorum margir á því að þetta væri pinot noir. Bæði út af lit og ilmi. Kom svo í ljós að það var alls ekki svo. Enn eitt vínið þar sem svæði og vín fór ekki saman í þessu smakki.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2020 Bosque de Matasnos Ribera del Duero 89 Points

    Spain, Castilla y León, Ribera del Duero

    Dökkur litur.
    Í nefi: Niðursoðnir ávextir, sólber, brómber, reykjelsi, tjara. Dökkir tónar.
    Þægilegur ilmur.
    Mikill ávöxtur á tungu. Brunatónar, blek, mikið kryddað chili. Þurrkandi tannín. Smá ójafnvægi.
    Ég tók restina af þessu heim og smakkaði svo daginn eftir. Það hafði frekar batnað heldur en hitt. Sem bendir til þess að það þoli smá geymslu í viðbót (2-3 ár a.m.k.). Ekki kannski frábær kaup fyrir 34€ en alveg þokkaleg.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 4 - Gamalt og nýtt frá Mondavi (2 Notes)

  • 2018 Robert Mondavi Winery Cabernet Sauvignon The Estates Oakville 91 Points

    USA, California, Napa Valley, Oakville

    Frekar dökkur litur.
    Þegar snasað var af víninu þá voru þarna m.a. sólber, ribena safi, sulta, sætt tóbak og reykjartónar. Svolítið ýktur ilmur.
    Við fundum svo bragð af plómum, sveskjusultu. Þétt og samþjappað vín. Fínt vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2000 Robert Mondavi Winery Cabernet Sauvignon Napa Valley

    USA, California, Napa Valley

    Mjög dökkur litur.
    Það var nú ekki talað mikið um ilminn af þessu víni. Eina sem ég heyrði var spítalalykt.
    Í munni mátti hins vegar finna: Kakó, súkkulaði, púrtvínstóna, stöm tannín og járnoxun.
    26 ára gamalt vín og furðu gott miðað við það í byrjun. Fór samt fljótt að dala í glasinu. Sleppi því einkunn. Mér fannst það þó alveg vera að skora 92-93 á meðan það var í standi.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Flight 5 - Cabernet franc þrúgan greind í tætlur (5 Notes)

  • 2021 Dusted Valley Vintners Cabernet Franc Southwind Vineyard Estate 88 Points

    USA, Washington, Columbia Valley, Walla Walla Valley

    Mjög dökkur litur.
    Í nefi mátti finna: Blýant, mjólkurtóna (grísk jógúrt), blóð, járn, hrátt kjöt, sólber.
    Rosalega stamt á tungu. Furunálar. Mjög dökkir tónar.
    Mig minnir að Andri hafi lagt þessa í púkkið.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2018 Domaine de Pallus Chinon La Croix Boissée 88 Points

    France, Loire Valley, Touraine, Chinon

    Frekar dökkt á litinn.
    Í byrjun var vínið þrællokað. Það var tekin ákvörðun um að henda því í karöflu þar sem það var hrist. Næsta vín var svo tekið á undan áður en kom að þessu aftur.
    Eftir karöflumeðferð þá fóru nú að koma smá lyktarglefsur. Aðallega bleia af hvítvoðungi, pipar, gammel dansk, aperol og blómatónar.
    Í munni kom fram blóð og kalksteinn. Mjög dökkir tónar.
    Ég var nú ekki yfir mig hrifinn af þessu víni. Kannski þarf að geyma það nokkur ár til að það mildist aðeins?

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2020 Paul Hobbs Cabernet Sauvignon Nathan Coombs Estate Coombsville 93 Points

    USA, California, Napa Valley, Coombsville

    Mjög dökkur litur.
    Ilmurinn: Sætur ávöxtur í byrjun, botrytis, mikill þéttleiki. Ilmvöndull.
    Mjög ferskt á tungu. Brunatónar, tjara, reykur. Mjög dökkir tónar. Mjög þétt vín. Virkilega flott jafnvægi.
    Í mínum huga eitt af betri vínum kvöldsins.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2019 Daou Vineyards Seventeen Forty Reserve 92 Points

    USA, California, Central Coast, Paso Robles

    Dökkur litur.
    Vorilmur, blóm, birkibrum, lofnarblóm, blóð. Mjög skemmtilegur ilmur af þessu víni.
    Þegar hér var komið sögu í smakkinu voru bragðlaukar orðnir ansi lúnir. Þarna mátti samt finna svört kirsuber og kaffi. Mjög frambærilegt vín.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

  • 2023 En Numeros Vermells Priorat 91 Points

    Spain, Catalunya, Priorat

    Meðaldökkur litur.
    Í nefi: Brennisteinn, tjara, gúmmi, leður. Eintómir dökkir tónar.
    Á tungu: Þarna voru menn alveg búnir á því. Mér tókst ekki að fá eitt einasta vitrænt svar um bragð. Eina sem ég get sagt er að bragðið var mjög dökkt og þar voru svipaðir tónar og í ilmi.
    Eins og mér finnst Silvía frábær víngerðarkona þá er ég ekki viss um að ég sé hrifinn af þessu cabernet franc dæmi hjá henni.

    Post a Comment / Do you find this review helpful? Yes - No

Closing

Þetta var risasmakk! Held að við höfum smakkað 20 vín. Man ekki eftir því að smakk hjá klúbbnum hafi verið svona stórt áður.
Hvítvínshlutinn var áhugaverður. Við áttum samt í mesta basli við að átta okkur á því hvað væri hvað í þeim hluta. Cabernet franc parturinn var líka mjög fróðlegur. Ég er ekki viss um að þetta sé þrúga sem ég fer að eltast við (a.m.k. ekki í hreinni útgáfu). Það virtist þó vera að bandarísku vínin væru aðgengilegri en þau evrópsku. Það var líka eitt í þessu smakki sem var magnað. Það kom fyrir aftur og aftur að við vorum með vín sem voru mjög ólík því sem búast má við frá þeirri þrúgu. Fyrir mig voru þrjú vín sem skáru sig úr. Matasnos tempranillo malbec var frábært og svo voru Jacquesson kampavínið og Paul Hobbs vínið þar skammt á eftir.

×
×