2021 Comando G La Bruja de Rozas

Community Tasting Note

wrote:

Friday, April 12, 2024 - Eðalklúbbur. Vínsmakk apríl 2024. (Marbakkabraut 12): Þetta vín var opnað á undan formlegu smakki og líka á undan osta og skinku smakki.
Óformlegar nótur. Kattahland, fjós, ger og brennisteinn voru ilmglefsur sem komu fram. Mjög sýruríkt á tungu. Mjög óspennandi vín.
Ég taldi mig hafa smakkað þetta vín áður og það hefði komið betur út þá. Það lítur nú út fyrir að hafa verið misskilningur. Ég hef ruglað því saman við e-ð annað vín. Eins og vínið stóð sig í þessu smakki þá hefði ég gefið því 78-80. Sleppi einkunn því það er svo langt frá CT meðaltali.
Við töldum ekki að vínið væri skemmt þarna um kvöldið. Björgvin tók svo afganginn af víninu með sér heim til frekari skoðunar. Afrakstur þeirrar vinnu var að vínið hlyti að vera skemmt á einhvern hátt það væri svo skrítið. Ég hallast líka að því. Þetta var ekki eðlileg frammistaða fyrir þetta vín.

Post a Comment / View bitdrerik's profile
Do you find this review helpful? Yes - No / Report Issue (666 views)
×
×